Kókaín vinsælasta fíkniefnið 26. júlí 2004 00:01
Kókaín er orðið lang vinsælasta fíkniefnið í Danmörku og nær nú til allra þjóðfélagshópa. Nákvæmlega sama þróun virðist vera upp á teningnum hér á landi þar sem dagsskammturinn kostar rösklega tíu þúsund krónur. Danska blaðið Politiken greinir frá því að kókaínið sé orðið vinsælla fíkniefni í samkvæmum en e-pillan, eða helsælan, og neysla þess nái nú út fyrir raðir ríka og fræga fólksins og til allra þjóðfélagshópa. Talsmenn dönsku fíkniefnalögreglunnar segja að framboðið aukist stöðugt og verðið fari lækkandi, þrátt fyrir að mun meira kókaín sé nú tekið úr umferð en nokkru sinni fyrr. Lögreglan gerði 104 kílógrömm upptæk í fyrra og talið er að það sé í mesta lagi 10% af heildarinnflutningi á efninu til landsins. Neyslan í Danmörku gæti þannig numið u.þ.b. einu tonni af kókaíni á ári. Dönsk heilbrigðisyfirvöld segja líka að innlögnum á sjúkrahús vegna kókaínneyslu hafi snarfjölgað hin síðari ár, einkum síðastliðin tvö ár. Sverrir Jónsson, læknir á Vogi, tekur í sama streng en 192 kókaínfíklar voru lagðir in á Vog í fyrra. Þegar hann hóf þar störf fyrir sjö árum var þetta nær alveg óþekkt, nema meðal fárra Íslendinga sem voru búsettir erlendis og höfðu ánetjast efninu. Karlmenn eru þarna í margföldum meirihluta en konur sækja þó á að sögn Sverris. Breska blaðið The Guardian greinir frá svipaðri þróun í Bretlandi og segir að framleiðendur í Suður-Ameríku leggi nú mun meiri áherlsu á Evrópumarkað en áður. Það kann að nokkru að skýrast af því að bandarísk stjórnvöld hafa styrkt stjórnvöld í þeim heimshluta til að uppræta kókaínframleiðendur til að hefta innflutning á því til Bandaríkjanna. Í ljósi þessara frétta frá Bretlandi lítur út fyrir að að lítið eða ekkert dragi úr framleiðslunni; henni sé einfaldlega beint inn á annan heimshluta.
Fréttir Innlent Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem brugið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Sjá meira