Sprotafyrirtæki líða fjárskort 8. júlí 2004 00:01 "
Margir eru fljótir að gleyma því að það tók fyrirtækin Marel, Össur og Delta ein fimmtán ár að ná virkilegum árangri í sínum atvinnugreinum," segir Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Áhættufjárfesting á Íslandi er enn í lágmarki og fjárfestar virðast ekki hafa öðlast trú á íslenskum sprotafyrirtækjum þrátt fyrir að dæmin sanni að mörg slík fyrirtæki skili hvað mestum og bestum arði til langtíma litið. Sveinn segir að þar liggi hundurinn grafinn. "Kröfurnar eru með þeim hætti í dag að það vill enginn sýna nýjum fyrirtækjum þá þolinmæði sem þau öll þurfa til að vaxa og dafna. Það dettur engum í hug að líta tíu til fimmtán ár fram í tímann en það er einmitt það sem mörg sprotafyrirtæki þurfa. Það tekur tíma, vinnu og erfiði að komast í fremstu röð og ómögulegt er að ætlast til að kraftaverk gerist á einu til tveimur árum eins og margir fjárfestar virðast trúa. Ef fyrirtæki er ekki líklegt til að sýna hagnað til skamms tíma litið er lítill vilji til að festa þar peninga og mér er spurn hvar íslenskur hlutabréfamarkaður væri í dag ef þetta hefði verið viðkvæðið þegar Össur, Marel og Delta voru að hefja starfsemi." Sveinn segir að í þessu tilliti hafi íslensk stjórnvöld einnig átt að gera meira. "Mér hefði fundist eðlilegt að ríkið setti einhvern hluta þess fjár sem til féll með sölu bankanna í þennan enda markaðarins þar sem þörfin er hvað brýnust. Einkaaðilar hafa ekki sýnt sprotafyrirtækjum áhuga um nokkurn tíma en það gæti breyst ef ríkið gengur á undan með fordæmi. Ég hef trú á að fjárfestar komi til fyrr en seinna en ef ekki verður athyglisvert að skoða hlutabréfamarkaðinn í framtíðinni ef sprotarnir í þjóðfélaginu skjóta ekki rótum." Ekki er ýkja langt síðan skýrt var frá því í bandaríska dagblaðinu New York Times að stór gjá væri milli Bandaríkjanna og Evrópu hvað varðar þáttöku áhættufjárfesta í atvinnulífinu. Var bent á að í Massachussetts fylki einu saman væri meira um áhættufjármagn en í allri Evrópu. Virðist því sem Bandaríkjamenn séu dugmeiri þegar kemur að því að veðja á frumkvöðla og framúrstefnu enda er gróðavonin hvergi betri ef vel gengur.
Fréttir Innlent Mest lesið WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Kjartan er kominn heim til Íslands Innlent Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Erlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Innlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Uppnám á bráðamóttökunni og seinagangur í Grindavík Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás í Grafarvogi WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Sjá meira