Auralaus nýsköpunarsjóður 12. nóvember 2004 00:01
Ástandið í nýsköpun og hjá sprotafyrirtækjum hér á landi er "virkilega bágborið," að sögn Gunnars Arnar Gunnarssonar framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs. Ástæðan er sú, að sjóðurinn hefur, sem stendur, ekki bolmagn til að fjárfesta í nýjum hugmyndum umfram það sem hann hefur þegar gert. Íslensk fyrirtæki og einstaklingar líta mest til fjárfestinga erlendis, segir Gunnar Örn og kveðst hafa áhyggjur af því. "Það er ljóst að umhverfið á markaðinum hefur breyst mjög mikið," sagði Gunnar Örn. "Fyrir nokkrum árum var töluvert um að fyrirtæki og sjóðir væru að fjárrfesta í sprotafyrirtækjum. Þetta gjörbreyttist í kringum 2001. Nýsköpunarsjóður, sem starfað hefur í sjö ár, var mjög akvæðamikill í að fjárfesta í nýjum fyrirtækjum fyrstu fimm árin. Að meðaltali var hann að setja um milljarð á ári inn í nýsköpunarferlið. Nú hefur sjóðurinn ekki lengur bolmagn til þessa. Hlutverk hans í dag er að standa þétt við þær fjárfestingar og fyrirtæki sem hann á í, hefur trú á og munu geta skilað honum hagnaði í framtíðinni, þegar þau verða seld. En hann hefur ekki farið inn í nýjar fjárfestingar í á annað ár." Gunnar Örn sagði að forráðamenn Nýsköpunarsjóðs hefðu átt í viðræðum við ríkisvaldið um að brúa bilið, þar til sjóðurinn gæti selt nægilega mikið af eignum og haldið áfram. Hefði verið farið fram á tvo milljarða, sem myndu dreifast á næstu tvö til þrjú ár. "Þá höfum við komið þeirri hugmynd á framfæri, að ef Síminn yrði seldur fyndist okkur ekki óeðlilegt að hluti af söluverðmætinu myndi renna til nýsköpunar í hátæknifyrirtækjum framtíðarinnar. Síðastliðið vor voru samþykkt lög á Alþingi, sem heimiluðu Nýsköpunarsjóði að stofna sjóði með öðrum. Við höfum farið til sjö stærstu lífeyrissjóða í landinu og kynnt hugmynd þar að lútandi fyrir þeim. Þeir eru tilbúnir að skoða hugmynd að slíku samstarfi, en engin ákvörðun verið tekin. Við vitum að lífeyrissjóðirnir eru að fjárfesta í slíkum áhættufjárfestingasjóðum erlendis og því er það að okkar mati eðlilegt að þeir skoði einnig slíka kosti hér heima."
Fréttir Innlent Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Fleiri fréttir Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Hundrað eldislaxar í Haukadalsá, ásakanir um samráð og blómlegt í Hveragerði Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði