Fullt samráð verður haft 12. nóvember 2004 00:01
Nýr yfirmaður Varnarliðsins segir að allar breytingar á starfseminni á Keflavíkurflugvelli verði gerðar í samráði við íslensk yfirvöld. Samdráttur í starfsemi varnarliðsins hér á landi tengist breytingum á skipan Bandaríkjaflota í Evrópu og er einnig í takti við minnkandi umsvif á Keflavíkurflugvelli. Að venju er sérstakt yfirbragð þegar yfirmannaskipti fara fram á Keflavíkurflugvelli. Nýr yfirmaður varnarliðsins er Robert S. McCormick, ofursti en hann hefur verið aðstoðaryfirmaður varnarliðsins síðan í júlí sl. Hann kemur úr háloftunum en hann starfaði m.a. í sprengjuflugflotanum og í aðalstöðvum flughersins í Washington. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, segir ákveðin tímamót í gangi, enda taki nú við ofursti, sem sé næsta tignarstaða fyrir neðan flotaforingja, sem áður hafi gegnt starfinu. Hann segir þó að ekki sé um veruleg tímamót að ræða að öðru leyti. Hann segir ástæðu breytingarinnar fyrst og fremst þá að Bandaríkjamenn þurfi á flotaforingjum að halda annars staðar. Charles F. Wald, hershöfðingi og aðstoðaryfirmaður Evrópuherstjórnar bandaríkjahers var við athöfnina í morgun og sagði hann m.a. að Bandaríkjamenn mætu samstarfið við Íslendinga mikils. Allar breytingar á starfseminni á Keflavíkurflugvelli væru gerðar í nánu samstarfi við íslensk yfirvöld. Undir þetta tók nýr yfirmaður varnarliðsins, Robert McCormick. Hann segir að þegar stjórnmálamenn í Bandaríkjunum komi til þeirra skilaboðum um hvað skuli gera, komi þeir þeim skilaboðum áleiðis til Íslands. Þannig viti fólk ávallt hvað muni gerast næst.
Fréttir Innlent Mest lesið Þjóðhátíðargestum hleypt inn í Herjólfshöll meðan veðrið gengur yfir Innlent Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Innlent „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Innlent Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Erlent Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Innlent Opnun Samverks á Hellu fagnað Innlent Þjóðarpúls Gallups: Kristrún og Þorgerður gætu myndað meirihluta án Flokks fólksins Innlent Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa Erlent Þjóðhátíð í Eyjum: Farþegafjöldi í Herjólfi komi á óvart Innlent Fékk sex milljónum of há laun og neitaði að endurgreiða þau Innlent Fleiri fréttir Þjóðhátíðargestum hleypt inn í Herjólfshöll meðan veðrið gengur yfir Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Opnun Samverks á Hellu fagnað „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Þjóðarpúls Gallups: Kristrún og Þorgerður gætu myndað meirihluta án Flokks fólksins „Ég upplifi þetta sem mikinn yfirgang og ofbeldi“ Íbúar við Þjórsá æfir og þrumuveður um Versló Handtekinn með reipi um hálsinn eftir ofsaakstur á flugbraut undir áhrifum fíkniefna Búast við þrumuveðri og vatnavöxtum Ný verðskrá kindakjöts vonbrigði fyrir sauðfjárbændur Sagði foreldrana líklega hafa dottið í aðdraganda andlátsins Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Fundu engan hvítabjörn Hraunbreiðan þykknar og líkur á framhlaupum aukast „Hann skilar algjörlega auðu í náttúruverndarmálum“ Þjóðhátíð í Eyjum: Farþegafjöldi í Herjólfi komi á óvart Skýrara hvar besta veðrið verður um helgina Vann skemmdir á golfvelli og skildi eftir smokk Trump hækkar tolla á Ísland og viðbúnaður á Þjóðhátíð Þyrlan farin vestur í hvítabjarnareftirlit Fékk sex milljónum of há laun og neitaði að endurgreiða þau Annasamt ár á Bessastöðum: Kóngafólk, keisari, umtöluð undirskrift og brúnir skór Áhrifin af stöðvunarkröfunni óveruleg Mengun gæti borist á Snæfellsnes og Vestfirði Hlutum kastað til í verslun og könnu í bílrúðu Óheppilegt ef fölsk mynd varpar sök á saklausan mann Skiptar skoðanir um umfang og kostnað vegna listaverks Ólafs í Eyjum Sakar sveitastjórann um atvinnuróg og „kæfandi klámhögg“ „Komið nóg af áföllum“ Níu ára og með sitt eigið „Fannars bakarí“ í Njarðvík Sjá meira