Enn umfangsmeira en ráðgert var 12. nóvember 2004 00:01
Orkuveita Reykjavíkur, en ekki Landsvirkjun, fær raforkussamning vegna enn frekari stækkunar Norðuráls, samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð verður í næstu viku. Stóriðjuframkvæmdir á Suðvesturhorni landsins verða umfangsmeiri en áður var ráðgert, samkvæmt henni. Í stað þess að Landsvirkjun ráðist í hina umdeildu Norðlingaölduveitu ætlar Orkuveitan að virkja enn meira á Hengilssvæðinu og hugsanlega bæta við annarri jarðgufuvirkjun á Hellisheiði. Mikil umsvif eru á Grundartanga þessa dagana en þar er stækkun Norðuráls komin á fulla ferð. Þær framkvæmdir, svo og smíði tveggja nýrra jarðgufuvirkjana, á Hellisheiði og á Reykjanesi, eru afleiðingar orkusamnings sem Norðurál gerði við Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja snemma í vor vegna stækkunar álversins úr 90 þúsund tonnum upp í 180 þúsund tonn. Í morgun undirrituðu Landsvirkjun, Hitaveita Suðurnesja og Orkuveitan fjórtán milljarða króna lánasamninga við fjárfestingarbanka Evrópu vegna þeirra orkuframkvæmda sem þessu fylgja. Brátt þarf einnig að slá enn meiri lán í útlöndum því það er enn umfangsmeiri framkvæmdir í farvatninu. Í síðustu viku var tilkynnt um viðbótarsamkomulag Norðuráls, Orkuveitunnar og Hitaveitunnar sem leiðir til þess að haldið verður áfram að stækka álverksmiðjuna upp í 212 þúsund tonn og sennilega í 220 þúsund tonn með enn frekari orkuframkvæmdum, bæði á Suðurnesjum og Hengilssvæðinu. En þar með er ekki öll sagan sögð því samhliða undirritun þessara viðbótarsamninga í næstu viku munu Norðurál og Orkuveita Reykjavíkur undirrita viljayfirlýsingu um 50 megavatta orkusölu vegna stækkunar upp í 260 þúsund tonn, sem Norðurál vill ráðast í sem fyrst. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir að verið sé að skoða nokkra möguleika á því hvernig útvega megi frekari orku. Í fyrsta lagi sé mögulegt að stækka Nesjavallarvirkjun, einnig megi nýta betur orkuna í Hellisheiðarvirkjun og loks sé verið að skoða nýtt svæði á Heillisheiðinni. Áður hafði verið búist við að Norðurál myndi semja um þessi viðbótarorkukaup við Landsvirkjun sem hefði þýtt framkvæmdir við Norðlingaölduveitu, sunnan Þjórsárvera. Þessi niðurstaða sem nú stefnir í felur í sér að bið verður á framkvæmdum við Norðlingaalda en hjá Orkuveitu Reykjavíkur þurfa menn að taka á við enn meiri uppbyggingu en áður var ráðgert. Guðmundur segir uppbygginguna hraðari en gert hafi verið ráð fyrir og mjög mikil bjartsýni ríki varðandi stækkunina.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira