Ekki ráðskast með Olíudreifingu 12. nóvember 2004 00:01
Forsvarsmenn Olíufélagsins settu það skilyrði fyrir samvinnu við Samkeppnisstofnun, að ekkert yrði ráðskast með Olíudreifingu. Þetta kom fram við yfirheyrslur Ríkislögreglustjórans yfir stjórnarformanni Olíufélagsins. Samkeppnisstofnun heimilaði starfsemi Olíudreifingar, sem er í eigu Essó og Olís, með ákveðnum skilyrðum. Forstjóri Skeljungs hefur lýst grunsemdum um að Essó hafi sett það sem skilyrði fyrir því að Essó ynni með Samkeppnisstofnun að rannsókn á samráði olíufélaganna, að Olíudreifing fengi að starfa áfram. Þetta fæst staðfest í skýrslu frá Ríkislögreglustjóranum. Í yfirheyrslu yfir Kristján Loftssyni stjórnarformanni Kers, áður Olíufélagsins, segir hann að hann og Kristinn Hallgrímsson lögmaður félagsins og Ólafur Ólafsson hafi farið á fund Samkeppnisstofnunar í mars 2002 og rætt málin varðandi samvinnu. Síðan segir hann að ákveðið hafi veirð að hefja samstarf með Samkeppnisstofnun. Í því samkomulagi hafi meðal annars falist afsláttur á sektum ef til þeirra kæmi, að ekki yrði ráðskast með rekstur Olíudreifingar og að Samkeppnisstofnun færi ekki að eigin frumkvæði með málið til lögreglu. Ekki náðist í Kristján í dag til að fá staðfest að orðið hafi verið við skilyrðunum, en í það minnsta starfar Olíudreifing í dag og Essó fékk afslátt af sektum. Meðal skilyrða sem Samkeppnisstofnun sett fyrir starfsemi Olíudreifingar var að stjórnarmenn í Essó, Olís eða Hydro Texaco sætu ekki í stjórn Olíudreifingar. Hins vegar hafa aðrir forsvarsmenn bæði Essó og Olís setið þar í stjórn.
Fréttir Innlent Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira