Krónan mjög sterk 18. nóvember 2004 00:01
Íslenska krónan stendur um þessar mundir afar sterk gagnvart erlendri mynt, sér í lagi dollara. Þetta hefur margvísleg áhrif á íslenskt efnahagslíf, innfluttar vörur ættu að lækka í verði en á sama tíma má búast við að arðsemi fyrirtækja í útflutningi minnki. Gengi krónunnar hefur ekki verið hærra í níu mánuði meðal annars vegna þess að erlend lántaka hefur aukist verulega. Því til grundvallar liggur mikill munur á innlendum og erlendum vöxtum. Bandaríkjadalur stendur nú í rúmum 66 krónum og hefur ekki verið lægri gagnvart krónunni síðan seint á árinu 1997 samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Ingólfur Bender forstöðumaður greiningardeildar bankans segir þessa þróun þýða að verð á innfluttum vörum lækkar í verði en einnig að þeir sem standa í útflutningi fá minna fyrir sinn snúð. Hann segir að styrking krónunnar dragi úr hagvexti almennt, en einkaneysla aukist og til að mynda aukist innflutningur á bílum og öðrum influttum vörum mikið. Viðskiptahalli eykst stöðugt samfara þessari þróun, fólk kaupir meira af innfluttum vörum vegna þess á hve hagstæðu verði þær fást en verðmæti útfluttra vara minnkar. Ingólfur segir stöðuna endurspegla sterkt efnahagslíf á Íslandi, og trú erlendra fjárfesta á krónunni en þeir hafi sýnt það með fjárfestingum í íslenskum skuldabréfum og stóriðju. Hann á von á að þessi þróun haldi áfram í það minnsta eitthvað fram eftir næsta ári, krónan haldi áfram að vera sterk og að dollarinn eigi jafnvel eftir að lækka talsvert meira frá því sem nú er. Hann segir mun ódýrara að ferðast til Bandaríkjanna og versla þar nú heldur en var fyrir nokkrum árum. Jafnvel megi búast við því að Íslendingar nýti sér þetta á næstunni. Hann segir að erlend lán lækki við styrkingu krónunnar, sem sé gott fyrir skuldsetta þjóða eins og Ísland.
Fréttir Innlent Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Fleiri fréttir Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sjá meira