Innlent

Þjóðarbókhlaðan minna opin

Formaður Stúdentaráðs segir styttri afgreiðslutíma Þjóðarbókhlöðunnar bakslag fyrir baráttu stúdenta fyrir betri aðgangi að Háskólanum. Rektor segir þjónustu við nemendur aukast og Háskólann spara þrettán milljónir. Afgreiðslutími Þjóðarbókhlöðunnar verður styttur næsta haust vegna sparnaðaraðgerða Háskóla Íslands. Formaður stúdentaráðs segir skertan afgreiðslutíma á næsta skólaári algerlega óásættanlega niðurstöðu. Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, segir ekki ætlunina að skerða þjónustu við nemendur heldur auka hana. "Við ætlum að opna húsnæði Háskólans fyrir nemendur og veita þeim þar vinnuaðstöðu utan kennslutíma miklu meira en við höfum getað gert til þessa," segir Páll. Það hafi verið erfitt þar sem öryggiskerfi hafi skort en það sé nú komið í lag. "Þetta er miklu ódýrari og hagkvæmari leið fyrir okkur til þess að veita nemendunum vinnuaðstöðu heldur en að greiða fjórtán milljónir til bókasafnsins." Páll segir kostnað við aukinn opnunartíma bygginga Háskólans kosta rúma eina milljón króna. Jarþrúður Ásmundsdóttir, formaður Stúdentaráðs, segir ljóst að Háskóla Íslands munar um þrettán milljónir. "Að gera þetta svona er þvílíkt bakslag í okkar baráttu. Það má spyrja sig að því í hvað peningarnir eigi að fara. Ég veit að það á eftir að klára ýmsa skrautmuni og skrautgrindur á Náttúrufræðihúsið og að það muni kosta um 20 milljónir. Ég veit að það er verið að íhuga að setja þær upp en það er ekkert verið að spá í það hvort stúdentar þurfi sína lesaðstöðu á kvöldin." Páll segir að aðgangurinn að öðrum byggingum Háskólans verði ekki óheftur. "Hann verður alla vega jafnrúmur ef ekki rýmri en hefur verið á bókasafninu." Páll segist vonast til þess að geta veitt fleiri nemendum lestraraðstöðu við Háskólann. Jarþrúður segir mikla eftirspurn eftir lesrýmum á kvöldin og ekki nóg pláss í byggingum Háskólans. Þjóðarbókhlaðan sé besta lesaðstaða skólans og ótækt að henni verði lokað á kvöldin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×