Draumur Portúgala á lífi 30. júní 2004 00:01
Portúgalir eru komnir í úrslitaleik stórmóts í knattspyrnu í fyrsta sinn en í gærkvöld lögðu þeir Hollendinga að velli, 2-1, í bráðskemmtilegum undanúrslitaleik sem fram fór á José Alvalade leikvanginum í Lissabon. Portúgalir höfðu áður þrisvar sinnum komist í undanúrslit á stórmóti en aldrei alla leið í úrslit. Fyrst var það á HM 1966, svo á EM 1984 og 2000. Sigur Portúgala var sanngjarn í það heila og eftir seinna mark sitt voru þeir í raun klaufar að hleypa Hollendingum inn í hann. Það var Ronaldo sem kom Portúgölum á bragðið með laglegu skallamarki á 26. mínútu eftir hornspyrnu Deco. Marc Overmars var klaufi að jafna ekki metin tveimur mínútum síðar en þá skaut hann yfir úr galopnu færi. Fjörið hélt áfram og Pauleta lét verja frá sér úr dauðafæri og Luis Figo átti glæsilegt skot í stöng. Hollendingar máttu því góðir heita að vera aðeins einu marki undir þegar Sænski dómarinn Anders Frisk flautaði til leikhlés. Portúgalar héldu yfirhöndinni fram eftir síðari hálfleik og Pauleta fór herfilega að ráði sínu á 54. mínútu er hann komst aleinn innfyrir en skaut beint á Van der Sar, markvörð Hollendinga. Fjórum mínútum síðar skoraði Manische stórkostlegt mark með skoti rétt við vítateigshornið, stöngin inn, algjörlega óverjandi og staða Portúgala orðin góð. Hollendingar komust inn í leikinn aðeins fimm mínútum síðar en þá varð Portúgalinn Andrade fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Hollendingum gekk brösuglega að ná einhverri sóknarpressu að ráði það sem eftir lifði leiks og ef eitthvað var voru Portúgalir líklegri til að bæta við - skyndisóknir þeirra voru stórhættulegar og úrslitin því ekkert annað en sanngjörn. Luis Figo, fyrirliði Portúgala, átti erfitt með að tjá sig eftir sigurinn: "Það er erfitt að lýsa tilfinningunni í einu orði. Við höfum mátt þola mikið mótlæti á leið okkar í úrslitaleikinn í okkar eigin heimalandi og getum ekki óskað okkur meira en þetta. Við fengum tækifæri til að skora fleiri mörk og ég held að við getum verið mjög sáttir við frammistöðu okkar í dag," sagði Figo sem er líklega að spila á sínu síðasta stórmót. Hann bætti við: "Portúgal á frábæra leikmenn. Við eigum unga og efnilega leikmenn og getum átt frábært lið í komandi framtíð."
Íslenski boltinn Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Magdeburg tapaði í undanúrslitum Stemningin á Times Square engri lík Breiðablik - Stjarnan | Ná Blikar að halda toppsætinu? Fram - Grindavík/Njarðvík | Framarar þurfa sigur Þróttur R. - ÍBV | Risaslagur um þriðja sæti deildarinnar Víkingur - FH | Heldur FH sigurgöngunni áfram? Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli „Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Dagskráin: Besta kvenna aftur af stað með risadegi Páfinn gerður að heiðursfélaga hjá Real Madrid Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jökull rekinn frá Stjörnunni Sjá meira