Heimsókn Hákons og Mette 27. júní 2004 00:01
Hákon krónprins Noregs, Mette-Marit krónprinsessa og dóttir þeirra komu nú síðdegis til Íslands í þriggja daga opinbera heimsókn. Krónprinsinn sagði þau hjónin mjög spennt fyrir heimsókninni til sögueyjarinnar. Heimsókn Hákons krónsprins og eiginkonu hans Mette Marit krónprinsessu hófst á Bessastöðum. Boðað var til blaðamannafundar vegna heimsóknarinnar, en næstu þrjá daga bíður hjónanna umfangsmikil dagskrá bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, bauð þau velkomin til landsins og sagði það afar ánægjulegt fyrir íslensku þjóðina að fá þau í heimsókn, enda væri þetta í fyrsta skipti í meira en 1000 ára sögu samskipta Íslands og Noregs sem krónprins, krónprinsessa og dóttir þeirra prinsessan kæmu saman til landsins. Hákon krónprins sagði þau hjónin mjög spennt fyrir heimsókninni, sem væri löngu tímabær . Hákon segir margt tengja Ísland og Noreg og að Norðmenn kunni vel að meta íslenska menningu. Þá sé margt í viðskiptalífinu sem tengi löndin saman til dæmis sjávarútvegurinn. Í kvöld verður sérstakur kvöldverður á Bessastöðum til heiðurs krónprinshjónunum og á morgun heimsækja þau meðal annars Þjóðmenningarhúsið og Þingvelli. Krónprinsinn lagði áherslu á náin samskipti og menningartengsl landanna og um deilu Íslendinga og Norðmanna um það hvort Leifur Eiríkisson væri íslenskur eða norskur sagði hann að við yrðum bara að eiga hann saman. Þá skaut Ólafur Ragnar Grímsson inní að Snorri hefði allavega verið íslenskur.
Fréttir Innlent Mest lesið Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Innlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Innlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Fleiri fréttir Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss Sjá meira