Innlent

Staðfestir voðaskot

Krufningsskýrsla vegna voðaskots sem varð Ásgeiri Jónsteinssyni að bana á Selfossi um miðjan mars hefur borist lögreglunni á Selfossi. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir að ekki verði annað ráðið að krufningsskýrslunni en að um voðaskot hafi verið að ræða. Skýrslan hafi ekki leitt neitt nýtt í ljós. Þó má samkvæmt skýrslunni leiða lyktum að skotið hafi hlaupið úr byssunni af stuttu færi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×