Kári þjálfar kvennaliði Gróttu/KR 15. júní 2004 00:01
Kári Garðarsson var fyrradag ráðinn nýr þjálfari kvennaliðs Gróttu/KR í handbolta. Kári, sem er ekki nema 22 ára,tekur við af Alfreð Finnssyni, sem söðlaði um fyrir skömmu og tók við liði ÍBV. Í vetur var hann aðstoðarþjálfari Ágústar Jóhannssonar hjá meistaraflokki Gróttu/KR í karlaflokki, og þá hefur hann sótt fjölda námskeiða um handboltaþjálfun, jafnt innlendis sem erlendis. „Ég er fyllilega reiðubúinn til að takast við þetta starf. Ég hef lært mikið af Ágústi síðastliðið ár, hann hefur mikla reynslu og hefur reynst mér góður lærifaðir,“ sagði Kári, þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær. Grótta/KR hefur misst nokkra lykilmenn í sumar og fór meðal annars Eva Björk Hlöðversdóttir, fyrirliði og markahæsti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð, til ÍBV. Kári segist vera að fara af stað með tveggja til þriggja ára uppbyggingarstarf og að fyrsta skrefið sé að styrkja liðið fyrir næsta tímabil. „Ég er aðeins byrjaður að vinna í leikmannamálum og við þurfum nauðsynlega að stækka hópinn. Þetta er mjög ungt lið og af þeim sökum kannski ekki hægt að búast við miklu af því á næsta ári. En eftir nokkur ár á þetta lið alveg að geta orðið eitt af sterkustu liðum landsins,“ segir Kári.
Íþróttir Mest lesið Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Enski boltinn Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Handbolti Dagskráin í dag: Salah, Doc Zone og auðveld bráð Arsenal Sport Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Salah, Doc Zone og auðveld bráð Arsenal Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Þjálfari meistaranna á hálum ís „Ég held ég viti núna hversu hröð ég er“ Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina Axel verður áfram hjá Aftureldingu 38 ára Jamie Vardy að skrifa söguna fyrir enska leikmenn á Ítalíu ÓL í hættu: Hólmfríður Dóra brotnaði á æfingu Launað ríkulega fyrir að koma Norðmönnum á HM Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH Sólin komin upp á ný hjá Selmu Sól eftir krefjandi ár Isak tæpur og Gakpo frá Freyr ekki hrifinn af „hrokafullum dómara“ Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Breytti um nafn til að „sýna þeim fingurinn“ „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ Saka FIFA um okurverð á miðum á HM næsta sumar „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Sjá meira