Schumacher ósigrandi í Kanada 15. júní 2004 00:01
Þýski ökuþórinn Michael Schumacher er á góðri leið með að eyðileggja Formúlu 1 kappaksturinn sem spennandi íþrótt. Yfirburðir hans eru slíkir að aðrir ökumenn líta út eins og þeir séu að leika í myndinni Ekið með Miss Daisy og í gær vann hann sinn sjöunda sigur í átta fyrstu keppnum ársins þegar hann kom fyrstur í mark í kanadíska kappakstrinum sem fram fór í Montreal. Sigurinn kom þó áhugamönnum í Formúlunni ekki á óvart því þetta var þriðja árið í röð og í sjöunda sinn sem þessi frábæri Þjóðverji vinnur í Montreal. Sigurinn var jafnframt 77. sigur Schumachers í Formúlu 1 kappakstrinum en hann var þó ekki auðsóttur. Schumacher var sjötti eftir tímatökuna og þurfti á öllu sínu besta að halda til að ná forystunni úr höndum bróðurs síns Ralfs sem var fyrstur á ráspól. Ralf, sem ekur fyrir Williamsliðið, réð ekki við eldri bróður sinn þegar Michael hafði náð forystunni og mátti teljast góður með að halda öðru sætinu því Rubens Barrichello, félagi Michaels hjá Ferrari, sótti hart að Ralf. Bretinn Jenson Button hjá BAR hafnaði í fjórða sæti. Schumacher hefur nú 70 stig á toppnum í keppni ökumanna, átján stigum á undan félaga sínum Barrichello. Button er þriðji með 43 stig. "Ég get ekki verið annað en sáttur við þennan sigur. Ég vissi að það yrði erfitt fyrir mig að ná fyrsta sætinu eftir lélega tímatöku en sem betur fer gekk allt upp hjá mér í dag," sagði Schumacher eftir keppnina.
Íþróttir Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti Fleiri fréttir Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Maður dagsins: Þjáfari hans hjálpaði honum að þroskast Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Dagskráin í dag: Risamót í golfi, bestu pílukastarar heims og Formúla 1 Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sjá meira