Innlent

Ríkir verða ríkari

Þeir ríku verða sífellt ríkari samkvæmt nýútkominni skýrslu um fjölda forríkra á síðasta ári. Ríkum fjölgaði á heimsvísu í fyrra um hálfa milljón og teljast nú 7,7 milljónir manna um allan heim til hóps þeirra sem þykja hafa hátt nettóvirði. Aukningin var því 7,5% á milli ára. Best var ástandið í Bandaríkjunum þar sem ríkum fjölgaði um fjórtán prósent. Hópur forríkra, þeirra sem eru meira en milljón dollara virði, fjölgaði einnig mikið þar í landi, eða um sextán prósent, og eru þeir nú 30.000 að tölu. Í Kína fjölgaði ríkum um 12% og á Indlandi um 22%. Flestir eru þó millarnir í Evrópu eða 2,6 milljónir alls. Þar var vöxturinn þó minnstur þetta skiptið og er atvinnuleysi, minni neyslu og þröngum fjárhag kennt um.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×