Innlent

Rollur í rétti

Í Fáskrúðsfjarðarhreppi sem og í fleiri sveitarfélögum er lausafjárganga búfjár leyfð. Óskar Þór Guðmundsson, varðstjóri á Fáskrúðsfirði, segir að á annan tug sauðfjár hafi drepist í vor. "Á hverju ári verða miklar skemmdir á bílum," segir Óskar. Lögreglunni á Fáskrúðsfirði er ekki tilkynnt um öll tilfellin því sumir bílstjórar segi bóndanum frá slysinu og aðrir flýji af vettvangi. Hún lítur málið alvarlegum augum. Mörg lögregluembætti á landinu kvörtuðu vegna lausagöngu búfjár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×