Ólíkur leikstíll í C-riðli á EM 15. júní 2004 00:01
Fyrir fram eru það Ítalir sem eru sigurstranglegastir í þessum C-riðli keppninnar. En hin liðin þrjú, Danmörk, Svíþjóð og Búlgaría, eru öll sýnd veiði en ekki gefin og geta öll auðveldlega komið á óvart. Leikstíll liðanna er mjög ólíkur, og þykir það ýta undir að viðureignirnar í þessum riðli geti orðið mjög skemmtilegar. Agað lið ÍtalaÍtalir eru með gríðarlega agað lið, spila mjög skipulega og eru líklega með bestu vörn í keppninni. Með sterka miðju og menn á borð við Christian Vieri og Francesco Totti í sókninni hafa Ítalir allt sem þarf til að hreppa titilinn. Ítalir hafa ekki haft heppnina með sér í síðustu tveimur stórmótum, en árið í ár gæti orðið þeirra. Þjóðin sættir sig ekki við neitt annað en sigur frá Giovanni Trapattoni og hans lærisveinum, og því er mikil pressa á herðum leikmanna liðsins. Danir spila sóknarbolta Danir komu öllum heiminum á óvart með því að vinna Evróputitilinn árið 1992. Nú, rúmum 10 árum seinna, spila Danir skemmtilegan sóknarbolta þar sem spilið fer mikið í gegnum tvo eldfljóta vængmenn, Jesper Gronkjær og Martin Jørgensen. Síðan er treyst á tvo reynda framherja, Jon Dahl Tomasson og Ebbe Sand, til að skora mörkin. Þar sem Ítalir eru taldir sigurstranglegir má leiða að því líkur að lykilleikur Dana í riðlinum verði gegn nágrönnunum í Svíþjóð. Svíar endurheimtu Larsson Flestir telja að baráttan um annað sætið í riðlinum muni standa á milli Svía og Dana. Endurkoma Henriks Larsson í sænska liðið veitir því mikið sjálfstraust og hafa leikmennirnir trú á að þeir geti veitt Ítölum verulega keppni um efsta sætið í riðlinum. Svíar hafa á mjög reyndu liði að skipa og ef Larsson nær upp góðum skilningi við félaga sinn í framlínunni, Zlatan Ibrahimovic, geta Svíar unnið alla andstæðinga sína í þessum riðli. Búlgarar ungir og óreyndirÓvænt velgengni Búlgara í undankeppninni kom á stað bjartsýnisbylgju á meðal þjóðarinnar um að hið unga núverandi lið Búlgara gæti fetað í fótspor fyrirrenna sinna, sem komust í undanúrslit HM 1994. En liðið er mjög ungt og óreynt, reyndar með yngsta meðalaldurinn í allri keppninni, og er ekki búist við miklu af þeim. Það má þó alls ekki vanmeta Búlgara. Leikskipulag liðsins snýst að mestu um tvo menn; leikstjórnandann Stilyan Petrov og markaskorarann Dimitar Berbatov. Lykilmenn liðanna í C-riðli Ítalía Sókn: Francesco Totti Miðja: Simone Perrotta Vörn: Alessandro Nesta SvíþjóðSókn: Henrik Larsson Miðja: Fredrik Ljungberg Vörn: Olaf Mellberg Danmörk Sókn: Jon Dahl Tomasson Miðja: Thomas Gravesen Vörn: Thomas Helveg BúlgaríaSókn: Dimitar Berbatov Miðja: Stilian Petrov Vörn: Ivailo Petkov
Íslenski boltinn Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Íslenski boltinn Fleiri fréttir BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Þjóðir biðja um að halda ekki upp á hinsegin daga meðan á leik þjóðanna stendur Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Lét menn heyra það á HM: „Þetta er smá sorglegt“ Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður? Kristinn fer til Spánar Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Maður dagsins: Þjálfari hans hjálpaði honum að þroskast Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Dagskráin í dag: Risamót í golfi, bestu pílukastarar heims og Formúla 1 Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira