Fram mætir Keflavík 15. júní 2004 00:01
Dregið var í VISA-bikarkeppni KSÍ í hádeginu í gær. Hjá körlunum var dregið í 16 liða úrslit en hjá konunum í 8 liða úrslit. Bikarleikir eru alltaf spennandi en mesta athygli hjá körlunum vöktu þó að venju leikir á milli úrvalsdeildarliðanna. Víkingar eiga harma að hefna gegn KA-mönnum en þeir síðarnefndu hreinlega stálu sigrinum þegar liðin mættust í Landsbankadeildinni. Framarar taka á móti Keflvíkingum og Fylkismenn halda til Grindavíkur. Óhætt er að segja að FH-ingar hafi ekki getað verið heppnari - fengu heimaleik gegn 2. deildar liði Aftureldingar. Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH, var líka býsna sáttur: "Ef hausinn á okkur verður í lagi eigum við að leggja Aftureldingu að velli. Við verðum þó að passa okkur því gengi okkar hefur verið nokkuð brösótt en þó er stutt í toppinn," sagði Heimir. Hjá konunum vekur leikur bikarmeistara Vals og Breiðabliks mesta athygli og þetta hafði þjálfari Valsstelpna, Elísabet Gunnarsdóttir, að segja: "Í bikarnum skiptir engu máli hvern maður fær - bikarleikir eru alltaf erfiðir. Það var þó mjög ánægjulegt að fá heimaleik og að sjálfsögðu stefnum við ótrauðar á að verja bikarinn. Fólk hefur talað um það að Valur hafi alltaf farið auðveldu leiðina í úrslit og ef af því verður í ár getur fólk hætt að tala um það," sagði Elísabet Gunnarsdóttir, glettin á svip. Leikirnir hjá körlunum fara fram 2.-5. júlí en hjá konunum 9.-10. júlí. 16 liða úrslit karla Víkingur-KA Njarðvík-KR HK-Reynir Sandgerði Þróttur-Valur Fram-Keflavík ÍBV-Stjarnan Fylkir-Grindavík FH-Afturelding 8 liða úrslit kvenna Þór/KA/KS-KR ÍBV-Þróttur Stjarnan-Fjölnir eða FH Valur-Breiðablik
Íslenski boltinn Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Fleiri fréttir Haaland og Ödegaard báðir á bekknum gegn Frakklandi Gætu spilað heimaleiki sína í Meistaradeildinni á heimavelli Brentford Forsetinn gaf öllum landsmönnum frí eftir að Ekvador komst áfram Líkur Skota á að komast áfram fóru úr 42 prósentum í 5,3 prósent á einum degi BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Þjóðir biðja um að halda ekki upp á hinsegin daga meðan á leik þeirra stendur Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Lét menn heyra það á HM: „Þetta er smá sorglegt“ Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður? Kristinn fer til Spánar Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Maður dagsins: Þjálfari hans hjálpaði honum að þroskast Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Dagskráin í dag: Risamót í golfi, bestu pílukastarar heims og Formúla 1 Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Sjá meira