Innlent

Danir rífast um nýstárlega virkjun

Raforkuframleiðsla bálstofa er ekki raunhæfur kostur hér að mati forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma. Í Danmörku er um þessar mundir tekist á um hvort virkja beri orkuna sem til verður við bálfarir og sýnist sitt hverjum, að því er fram kom í danska dagblaðinu Politiken um helgina. Þar mun ekki vera pólitískur vilji til að heimila slíka virkjun, þó að hún hafi um árabil viðgengist í Svíþjóð og víðar í Evrópu. Fram kemur að væri virkjuð orkan frá líkbrennsluofnum í Danmörku mætti þar framleiða sem næmi 8 milljónum kílóvattstunda á ári. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, segir virkjun bálstofa ekki eiga við hér og því sleppi þjóðin við að taka afstöðu til siðferðilegra álitamála henni tengdri. "Þetta er bara raunhæft hjá stærri bálstofum þar sem verið er að brenna þúsundir," sagði hann og bætti við að hér færu ekki fram nema tæpar 300 brennslur á ári. "Hugsanlega væri hægt hita Fossvogskirkju með þessu, eða eitthvað slíkt, en ég held að aldrei yrði lagt í þann kostnað sem fælist í slíkum breytingum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×