Innlent

Þinghlé að hefjast hjá dómstólum

Þinghlé hefst hjá flestum héraðsdómstólum landsins á morgun og standa þar til í byrjun september. Í Héraðsdómi Reykjavíkur verða ný mál ekki þingfest í þinghléi. Í Héraðsdómi Reykjaness verða einkamál ekki þingfest á meðan á hléinu stendur og verða færri málmeðferðir en venjulegt er og verður málum háttað á svipaðan hátt í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Engar aðalmeðferðir verða í Héraðsdómi Vestfjarða í þinghléi og munu færri mál verða á dagskránni. Ný einkamál verða ekki þingfest í þinghléi í Héraðsdómi Suðurlands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×