Tilkynningum um barnaklám fjölgar 28. júní 2004 00:01
Verkefnisstjóri Barnaheilla segir skorta á samstarf lögreglu við samtökin í málefnum barna. Tilkynningum til ábendingarlínu samtakanna fer fjölgandi og tengist þriðjungur þeirra barnaklámi. Fyrir helgi var fulltrúi belgísku samtakanna Child Focus hér á landi á vegum Barnaheilla en samtökin voru stofnuð af föður eins fórnarlamba barnaníðingsins Marc Dutroux. Barnaheill, Stígamót og Kvennaathvarfið eru að fara inn í fjölþjóðlegan gagnabanka um samtök sem bera hag barna fyrir brjósti til að auðvelda starf í þeirra þágu á milli landa. Child Focus samtökin hafa gert samkomulag við belgísk lögreglu- og dómsmálayfirvöld og vinna náið með þeim í málefnum barna sem eru týnd, hafa strokið eða orðið fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis. Það leiðir hugann að því hvernig samstarfið við lögreglu er hér á landi. Hrönn Þormóðsdóttir, verkefnisstjóri Barnaheilla, segir samstarfið meira á annan veginn, þ.e. að samtökin hafi samband við lögreglu en ekki öfugt, a.m.k. enn sem komið er. Hún vill að samstarfið verði skilvirkara og tekur fram að samstarfið sé nauðsynlegt þar sem Barnaheill hafi ekki leyfi til að gera rannsóknir eða nokkuð því um líkt. Ábendingarlína samtakanna er rekin á heimasíðu þeirra, barnaheill.is, en þar getur fólk komið með ábendingar í tengslum við málefni barna. Hrönn segir að á síðasta ári hafi borist 60 ábendingar að meðaltali á mánuði og hafi tuttugu þeirra reynst vera raunverulegt barnaklám. Hún segir aukningu hafa átt sér stað bæði hér á landi og erlendis.
Fréttir Innlent Mest lesið Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Sjá meira