Björgunaraðgerðir umfangsmeiri? 28. júní 2004 00:01
Björgunaraðgerðir við að bjarga tyrkneska súrálsskipinu, sem strandaði utan við Straumsvík á laugardaginn, gætu orðið mun umfangsmeiri en áætlað var í fyrstu, ef rétt reynist að sprungur séu komnar í byrðing þess. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar komu brestir í ljós í skrokki skipsins, sem heitir Kiran Pacific, þegar kafarar könnuðu botn skipsins í gærkvöld og fram á nótt. Þetta fékkst ekki fyllilega staðfest en ef svo er munu sérfræðingar jafnvel telja nauðsynlegt að létta skipið með því að flytja farminn yfir í annað skip, áður en reynt verður að draga það af skerinu, af ótta við að byrðingur skipsins kunni að bresta og sjór flæða í lestar þess. Vitað er að leki kom að stafnhylki og einhverjum botntönkum fyrir sjó en engin olía hefur lekið frá skipinu. Áhöfnin er enn um borð og varðskip er á vettvangi ef á þarf að halda. Fulltrúar Umhverfisstofnunar, tryggingafélags skipsins og hollenska björgunarfélagsins, sem búið er að semja við um björgunina, áttu óformlegan samráðsfund um borð í skipinu í morgun og er formlegrar björgunaráætlunar að vænta síðar í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira