Innlent

25 ára maður finnst látinn

Björgunarsveitarmenn af Suðurlandi fundu um miðnætti lík 25 ára ísraelsks ferðamanns í grennd við skálann í Hrafntinnuskeri, austan við Landmannalaugar, en mannsins hafði verið leitað síðan á sjötta tímanum í gær. Rannsókn málsins er á frumstigi en samkvæmt heimildum fréttastofu er talið líklegt að hann hafi orðið úti. Kalt var og kalsa rigning eða slydda á vettvangi og þegar ferðamaðurinn bað um aðstoð um farsíma undir kvöld í gær, sagðist hann vera rammvilltur, illa búinn og kaldur. Sjötíu björgunarmenn á mörgum jeppum hófu þegar leit og var maðurinn látinn þegar hann fannst. Lögreglan á Hvolsvelli kom með lík mannsins til byggða snemma í morgun. Maðurinn kom einn hingað til lands og ferðaðist einn. Hann lagði upp frá Landmannalaugum upp úr hádegi í gær og er talið líklegt að hann hafi ætlað að ganga yfir í Þórsmörk.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×