GSM-kerfi Símans eykur öryggi 29. júlí 2004 00:01
Síðustu tvö árin hafa sendarnir meðal annars verið nýttir til að staðsetja vettvang slysa. Það hefur komið í veg fyrir að björgunarsveitir séu sendar í leiðangra á fölskum forsendum. Ísland er fyrst ríkja til að nýta þessa tækni, segir Kristján Hoffmann, gæðastjóri Neyðarlínunnar 112GSM-sendar Símans hafa gjörbylt starfsaðferðum Neyðarlínunnar 112. Ótal dæmi sanni notagildi GSM-senda Símans við björgunarstörf. Hann bendir á að enn sem komið er sitji viðskiptavinir Símans einir að tækninni en viðskiptavinir OgVodafone einungis í reikisambandi í gegnum senda Símans. Pétur Pétursson, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála OgVodafone, bindur vonir við að viðskiptavinir OgVodafone njóti sömu þjónustu innan nokkurra vikna. Kristján segir GSM-sendana geta ráðið úrslitum. "Við höfum fengið símtöl þar sem menn ætla að fremja sjálfsvíg en neyðarverðir 112 eru oft endapunktar slíkra mála," segir Kristján. Hann nefnir dæmi um mann sem hringdi í þeim hugleiðingum og kom fram á GSM-sendi á hæstu hæðum við Grindavík. "Við gátum fundið í hvaða átt hann var. Svo gátum við talað við Landsímann sem gat rakið í hvaða númer hann hafði áður hringt í og þá gátum við staðsett hann með fárra kílómetra nákvæmni og hann fannst heill á húfi." Símkerfið tryggir staðsetningu Kristján segir algengt að fólk setjist upp í bíla sína og fari út á land. Það viti hvert það sé að fara en þekki ekki staðhætti á leiðinni. Þegar það lendi í slysi og hringi í Neyðarlínuna geti það aðeins sagt að það sé á leið, til dæmis, til Akureyrar en hafi ekki hugmynd um staðsetninguna að öðru leyti. Þá geti neyðarverðir með hjálp GSM-sendanna fundið út með þó nokkurri nákvæmni hvar fólkið sé staðsett. Njóti tækninnar ekki við þurfi mikinn líkindareikning og mat til þess að finna út hvar á landinu fólk sé statt. "Ungur maður hringdi í okkur af Holtavörðuheiðinni. Símasambandið var slæmt og hann sagði okkur að hann hefði orðið vitni af slæmri bílveltu á heiðinni og að bílinn hefði oltið ofan í á," segir Kristján. Í því tilviki hafi maðurinn verið staðsettur með hjálp sendis og svo hafi með hjálp korta verið ljóst að bíllinn hefði að öllum líkindum oltið í Norðurá. Í framhaldinu hafi verið kölluð út aðstoð frá Borgarnesi þar sem það var styst þangað. OgVodafone utan kerfis Kristján segir þann hæng á kerfinu að aðeins notendur Símans geti notið öryggis GSM-sendanna. "Við innhringingu í 112 úr OgVodafone kerfinu fáum við aðeins uppgefið heimilisfang notandans en ekki staðsetningu," segir Kristján. Pétur Pétursson, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála OgVodafone, bindur vonir við að hægt verði að staðsetja viðskiptavini OgVodafone í kerfi Neyðarlínunnar innan nokkurra vikna. "Að undanförnu hefur farið fram vinna að hálfu OgVodafone, Neyðarlínunnar og verkfræðistofunnar Hnits með það að markmiði að Neyðarlínan geti staðsett farsímanotendur OgVodafone hringi þeir í Neyðarlínuna í nauð. OgVodafone hefur lokið þeirri tæknilegu vinnu sem nauðsynleg er að hálfu fyrirtækisins svo þetta sé hægt," segir Pétur. Hann segir að einungis eigi eftir að hafa samstarf um að ganga frá lausum endum. Aukinn trúverðugleiki Kristján segir GSM-sendana auka á trúverðugleika upplýsinganna sem Neyðarlínan 112 fái. Hringi fólk úr óskráðum frelsissíma þurfi frekara mat áður en björgunarkerfið sé sett af stað því það skorti þann trúverðugleika. "Við höfum fengið tilkynningar um eld á Bolungarvík þegar það er hringt frá Keflavík. Við höfum fengið tilkynningu að barn væri að drukkna við Skeljagranda í Vesturbæ og að það væri verið að henda björgunarreipi til barnsins og það var plat. Allan tímann sem eitthvað er í gangi þá er alltaf endurmat á innhringjanda og aðstæðum hans. Það er slæmt að vita að til sé fólk sem er að plata, en að geta haft þessi hjálpargögn hér til að staðfesta trúverðugleika upplýsinganna er ómetanlegt," segir Kristján.
Fréttir Innlent Mest lesið Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Innlent Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Innlent Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Veður Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Erlent Fleiri fréttir Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Kalli Snæ biðst afsökunar Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Ein bílferð jafngildi tuttugu þúsund mótorhjólaferðum Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Féll í hálku í sundi og fær bætur Hátt spennustig, ruslið sem ekki er hægt að endurvinna og kvennavaka Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Írskir lögreglumenn til Íslands vegna máls Jóns Þrastar Bréfið rímar ekki við fullyrðingar Kalla Snæ Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Skúringabúnaðurinn laus af segulómtækinu en ástand þess óljóst Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Gátu loks yfirheyrt konuna Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Sjá meira