Aukin löggæsla um helgina 29. júlí 2004 00:01
Aukin löggæsla verður um verslunarmannahelgina en þá mun ríkislögreglustjóri aðstoða lögreglustjóra landsins. Lögreglustjórar bera ábyrgð á að halda úti löggæslu, hver í sínu umdæmi. Í því felst m.a. almenn löggæsla, eftirlit með fíkniefnum og umferðarlöggæsla. Þá verður fjölmennt lögreglulið í tengslum við útisamkomur. Til að efla löggæsluna enn frekar mun ríkislögreglustjórinn, veita lögreglustjórunum aðstoð varðandi fíkniefnalöggæslu, umferðareftirliti og við rannsókn alvarlegra brota. Umferðardeild ríkislögreglustjóra mun halda úti merktum og ómerktum bifreiðum vegna umferðareftirlits. Ómerktu bifreiðarnar eru búnar myndavélabúnaði til að taka myndir vegna hraðaaksturs. Ennfremur verður bifreið sem er sérstaklega útbúin til að taka öndunarsýni í málum sem varða ölvun við akstur. Fíkniefnastofa ríkislögreglustjóra mun veita lögreglustjórunum aðstoð í fíkniefnamálum og hefur í því skyni fengið til liðs við sig fimm fíkniefnalögreglumenn frá lögreglustjóranum í Reykjavík og lögreglustjóranum í Hafnarfirði, auk tollvarða frá tollstjóranum í Reykjavík sem munu veita aðstoð með fíkniefnaleitarhundum. Þeir munu skipta með sér verkum og ferðast um landið, tveir og tveir saman, og koma við á útihátíðum og að öðru leyti þar sem þeirra er þörf hverju sinni. Þetta er aðeins viðbót við löggæslu lögreglustjóranna sem víða hafa komið sér upp fíkniefnaleitarhundi. Þegar margir yfirgefa heimili sín eins og vænta má um þessa helgi er ástæða til að minna fólk á að ganga tryggilega frá öllu áður en lagt er af stað. En það er rétt að hugleiða hvernig hægt er að láta líta þannig út sem heimilið sé ekki yfirgefið eða mannlaust. Lögreglan á næstu lögreglustöð veitir upplýsingar um þessi atriði og gefur góð ráð sem oft koma að notum. Lögreglan verður sem fyrr með almennt eftirlit í lögsagnarumdæmunum og munu lögregluliðin einnig nota ómerkta bíla við þetta eftirlit.
Fréttir Innlent Mest lesið Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Innlent „Er allt komið í hund og kött?“ Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Innlent Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Innlent Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Innlent Fleiri fréttir Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Kalli Snæ biðst afsökunar Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Ein bílferð jafngildi tuttugu þúsund mótorhjólaferðum Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Féll í hálku í sundi og fær bætur Hátt spennustig, ruslið sem ekki er hægt að endurvinna og kvennavaka Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Írskir lögreglumenn til Íslands vegna máls Jóns Þrastar Bréfið rímar ekki við fullyrðingar Kalla Snæ Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Skúringabúnaðurinn laus af segulómtækinu en ástand þess óljóst Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Sjá meira