Alda og þari torvelduðu leit 29. júlí 2004 00:01
Leit að Sri hélt áfram í gær á svæðinu þar sem Hákon Eydal, banamaður hennar, segist hafa komið líki hennar fyrir. Ekki er frekari leit áætluð í dag. En um ellefuleytið verður sett út rekald og athugað hvert það flyst næstu tólf klukkutímana þar á eftir. Frekari aðgerðir verða ákveðnar í framhaldinu. Kafarar sögðu aðstæður til leitar mjög erfiðar og báru við mikilli öldu og verulegum botngróðri sem þeir þurftu að ryðja sér leið um. Þá var skyggni mjög lélegt, en undir öldunni var um tveggja til fjögurra metra skyggni. Tveir kafaranna eru frá lögreglunni í Reykjavík, tveir frá Ríkislögreglustjóra og fimm frá slysavarnarfélögum Landsbjargar í Hafnarfiði og Reykjavík. Straumur er nokkur við leitarsvæðið og liggur út eftir nesinu auk hreyfingar sjávar við flóð og fjöru. Við sjóleitina voru meðal annars notaðir tveir slöngubátar og björgunarbáturinn Einar Sigurjónsson. Auk kafaranna leituðu rúmlega eitt hundrað björgunarsveitarmenn allt frá Hvalfirði að Geldinganesi auk þess var leitað á eyjum og skerjum á sundunum. Fyrst var leitað í klettaskorinni fjörunni um einn og hálfan kílómetra í hvora átt frá þeim stað sem Hákon benti lögreglu á. Nær fjórar vikur er frá því að Sri týndi lífi. Aðspurður sagði Ómar Smári Ármannsson hjá lögreglunni í Reykjavík það ekki vera lengri tíma en gengur og gerist. Mjög einstaklingsbundið sé hversu langur tími líði frá verknaði og þar til játning fæst. Hann segir að auk þess sem leit að Sri verði haldið áfram þurfi að athuga hvort málsatriði passi við vitnisburð og önnur málsgögn.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira