Barði Sri með þungu barefli 29. júlí 2004 00:01
Hákon Eydal játaði í gær að hafa orðið barnsmóður sinni, Sri Rahmawati, að bana sunnudaginn 4. júlí. Hann hefur setið þögull í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur og var það fyrst í fyrradag sem hann greindi lögreglu frá því hvar hann hefði komið líkinu fyrir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins barði hann Sri til bana með þungu barefli. Hákon varð Sri að bana á heimili sínu í Stórholti. Í framhaldinu flutti hann líkið í jeppabifreið sinni í Hólsvík á Kjalarnesi þar sem fjölskylda hans á sumarbústað. Á mánudag vísaði Hákon lögreglu á Presthúsaskaga og sagðist hafa varpað líkinu í sjóinn fram af klettum. Hákon var handtekinn þriðjudaginn 6. júlí eftir að lögregla fann blóð og merki þess að glæpur hefði verið framinn í íbúðinni. Daginn eftir var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald í tvær vikur, sem síðar var framlengt um þrjár vikur. Fyrir um viku síðan var ljóst að blóð sem fannst í íbúð hans var allt úr Sri. En beðið hafði verið í nokkurn tíma eftir að niðurstöður úr DNA rannsóknum bærust frá Noregi. Eftir þá staðfestingu var hvarf Sri formlega rannsakað sem morðmál eins og lögregla hafði grunsemdir um í fyrstu. Hákon hefur lýst lögreglu í smáatriðum frá verknaðinum en þær upplýsingar fást ekki hjá lögreglu að svo stöddu. Þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær var lík Sri ófundið þrátt fyrir umfangsmikla leit. Níu kafarar hafa leitað hennar auk þess sem fjörur hafa verið gengnar. Í gær var leitað að Sri í sjónum við Hólsvík auk þess sem fjörur, sker og eyjar í sundunum voru gengnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira