Kennarar boða til verkfalls 30. ágúst 2004 00:01
Grunnskólakennarar boða til verkfalls í þessari viku. Verkfallið hefst eftir réttar þrjár vikur takist ekki að semja. Mikillar svartsýni gætir á meðal kennara. Yfirgnæfandi meirihluti grunnskólakennara samþykkti í sumar að boða til verkfalls frá og með 20. september hafi samningar ekki tekist. Boða verður til verkfalls með 2ja vikna fyrirvara og því verður Kennarasambandið að boða til verkfallsins fyrir sunnudagskvöld. Finnbogi Sigurðsson, formaður Félags grunnskólakennara segir varla nokkurn vafa á að boðað verði til verkfallsins, því hann sjái enga möguleika á því að skrifað verði undir samninga fyrir sunnudag. Finnbogi segist ekki treysta sér til að spá fyrir um hvort kennarar fari í verkfall, það komi í raun ekki í ljós fyrr en að kvöldi 19. september. Samninganefndir kennara og Landssambands sveitarfélaga eru enn að ræða vinnutímaákvæði á óformlegum fundum, en hafa verið boðaðir á fund hjá ríkissáttasemjara á fimmtudag. Finnbogi telur að viðræður um launahækkanir verði ekki uppi á borðinu þá, en hann telur þann hluta viðræðnanna ekki verða flókinn, þegar á annað borð verður búið að ná samkomulagi um önnur deiluatriði. Kennarar í fremstu fylkingu samninganna eru ekki bjartsýnir á þróun viðræðna á næstu dögum og óttast margir að til verkfalls komi. Í verkfallssjóði kennara eru til um 900 milljónir króna. Rúmlega 4000 manns kenna í grunnskólum landsins. Komi til verkfalls fá þeir 90 þúsund krónur á mánuði úr sjóðnum og því ljóst að verkfallssjóður kennara getur borið 2ja mánaða verkfall.
Fréttir Innlent Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Fleiri fréttir Þriggja ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Sjá meira