Ummæli ráðherra misvísandi 10. nóvember 2004 00:01
Ummæli félagsmálaráðherra um samskipti Barnaverndarstofu og meðferðarheimilisins að Torfastöðum eru misvísandi. Ummælin byggðust á greinargerð Ríkisendurskoðunar en virðast stangast á við niðurstöðu hennar. Félagsmálaráðuneytið sendi frá sér samantekt fyrir þremur vikum upp úr greinargerð Ríkisendurskoðunnar. Stöð 2 tók viðtal við Árna Magnússon félagsmálaráðherra sem harmaði að rekstraraðilar Torfastaða hefðu neyðst til að segja upp samningi við Barnarverndarstofu vegna samskiptaörðugleika. Í greinargerð ríkisendurskoðunnar segir hins vegar að tilraunir stofunnar til þess að koma á nýjum samningi hafi ekki á nokkurn hátt opinberað óvild eða andstöðu í garð heimilisins eins og hjónin á Torfastöðum hafa haldið fram. Sjónarmið Barnaverndarstofu hafi verið eðlileg þó ekki sé hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að gætt hafi þreytumerkja hjá starfsfólki Barnaverndarstofu í tengslum við samskiptaörðugleika. Hjónin sem reka Torfastaði gerðu kröfu um sambærilega samninga og gert hafði verið við meðferðarheimilið á Hvítárbakka en Ríkisendurskoðun segir þá kröfu óréttmæta og ósanngjarna. Árni Magnússon sagði að greiða yrði rekstaraðilum bætur, allt að fjórtán milljónir. Í niðurstöðu Ríkisendurskoðunnar segir hins vegar að kjósi félagsmálaráðuneytið að bæta það sem skort hefur upp á í samanburði við önnur heimili verði slík greiðsla að vera hófleg, enda ekki greiðsla sem meðferðarheimilið eigi lögvarinn rétt til. Þá yrði taka tillit til þess að heimilið hefur ekki veitt fulla þjónustu á þessu ári, til neitunarvalds Torfastaðar við inntökubeiðnir og umfangsmikils búrekstrar og þátttöku vistbarna í honum. Í niðurstöðu Ríkisendurskoðunar er bent á að starfsaðferðir Barnaverndarstofu við útboð á rekstri meðferðarheimila hafi vakið athygli á erlendum vettvangi. Þannig hafi OECD bent á þær sem „best practice“, eða besta framkvæmd, í tilmælum til aðildarríkja sinna.
Fréttir Innlent Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Erlent Fleiri fréttir Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Sjá meira