Enginn formannsfiðringur 31. desember 2004 00:01
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi er fimmtug í dag. Hún lauk BA-prófi í sagnfræði og bókmenntum 1979. Hún var borgarstjóri í Reykjavík 1994-2003. Ingibjörg var kjörin í borgarstjórn í Reykjavík 1982 fyrir Kvennaframboðið, 1988 og 1994 fyrir Reykjavíkurlistann og hefur verið í borgarstjórn síðan. Hún sat á Alþingi 1991-1994 fyrir Kvennalistann. Ingibjörg Sólrún er formaður stjórnar Aflvaka og situr í bankaráði Seðlabanka Íslands. Eiginmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur er Hjörleifur Sveinbjörnsson, deildarstjóri hjá Íslenska útvarpsfélaginu. Synir þeirra eru Sveinbjörn (1983) og Hrafnkell (1985). Úrelt viðhorf Tímamótin hringdu í Ingibjörgu Sólrúnu af þessu tilefni og spurðu hana fyrst um flugvallarmálið en samgönguráðherra ítrekaði nýlega þá skoðun sína að flugvöllurinn ætti að vera áfram í miðbæ höfuðborgarinnar. "Það er alveg ljóst að flugvöllurinn fer. Hann hefur grið á þessum stað til 2016 en eftir það verður hann að fara. Við höfum efnt til atkvæðagreiðslu um þetta og fyrir liggur aðalskipulag sem gerir ráð fyrir að hluti af flugvallarsvæðinu verði tekinn undir byggð eftir 2016." Hvað um atvinnusjónarmiðin? Vinnur ekki fjöldi Reykvíkinga við flugið og starfsemi á Reykjavíkurflugvelli? "Mér finnst nú gæta undarlegrar þröngsýni í málflutningi þeirra sem vilja hafa flugvöllinn hér og vísa til atvinnusjónarmiða. Í fyrsta lagi kemur auðvitað önnur starfsemi í staðinn. Flugvallarstæðið er kjörlendi fyrir margs konar atvinnustarfsemi. Í öðru lagi er það hreinlega úrelt viðhorf að miða umræðu um atvinnu við hreppamörk. Það vita allir að góð atvinna í einu sveitarfélagi hefur jákvæð áhrif í því næsta, gott atvinnuástand hefur áhrif á öllu atvinnusvæðinu. Atvinnusvæði Reykjavíkur nær orðið frá Borgarnesi til Selfoss. Nú, í þriðja lagi sýnist mér ekki veita af atvinnu á Suðurnesjum, ég tala nú ekki um ef svo fer sem horfir að herinn fari héðan." Er Reykjavíkurlistinn að skattpína borgarbúa? Á dögunum samþykkti borgarstjórn að hækka útsvarið. Reykjavíkurlistinn hefur aukið álögur á borgarbúa, til dæmis með holræsagjaldinu. Þá liggur fyrir að fasteignagjöld hækka vegna hækkunar á fasteignaverði. Er þetta ekki orðin óhófleg skattpíning? "Nei. Auðvitað verður alltaf að gæta hófs í þessu. Útsvarið er eins hér og hjá flestum sveitarfélögum. Og um holræsagjaldið má segja að það hefði örugglega verið lagt á, hver sem hefði verið hér við stjórn. Það er notað í sveitarfélögum sem sjálfstæðismenn stjórna, eins og til dæmis í Reykjanesbæ hjá Árna Sigfússyni. Hvað fasteignagjöldin varðar tel ég að við eigum að fara varlega og við höfum gert það. Á sínum tíma, þegar nýtt mat hækkaði grunn fasteignagjalda í Reykjavík, lækkuðum við gjaldaprósentuna, til þess að þetta ylli ekki auknum álögum. En ég hef ekki athugað þessa hækkun sem er að verða á matinu núna." Með formann í maganum? Ekki er hægt að skilja við Ingibjörgu Sólrúnu án þess að spyrja hana um formannssætið í Samfylkingunni. Er kominn formannsfiðringur í þig? "Nei, ekki get ég nú sagt það. Tíminn mun leiða í ljós hvað verður. Ég hef ekki verið að vinna að neinu í þessu sambandi. Gegni bara mínum störfum. Þetta verður ákveðið í haust. En afmælið Ingibjörg Sólrún, hefurðu haldið upp á það? "Já, yfirleitt eitthvað lítilsháttar. Ég hélt nú upp á fertugsafmælið í Norræna húsinu og mér finnst stórafmæli ágæt til þess að hitta þá sem ég hef verið samferða og unnið með og fagna með þeim. Núna langar mig til þess að hitta vini, ættingja og samferðafólk í dag í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu milli klukkan tvö og fjögur."
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira