Galdrastund með Skátum 17. desember 2004 00:01
Smekkleysa plötubúð, sem er staðsett á Laugaveginum fyrir neðan Bónus, hefur heldur betur slegið síðan hún hóf starfsemi í október. Tónleikar hafa verið haldnir alla föstudaga og laugardaga síðan þá og þessa helgina verður bætt um betur því einnig verða tónleikar á sunnudaginn. Það verður rafmögnuð stemning kl. 17 í dag þegar rafgúrúin í Ampop sem er nýkomin heim frá Bretlandi leikur fyrir viðstadda. Sveitin er að ljúka upptökum á sinni þriðju breiðskífu sem verður gefin út á alþjóðamarkaði. Tvær rokksveitir munu svo leika í Smekkleysu plötubúð á morgun. Annars vegar hljómsveitin Bacon sem inniheldur meðlimi sveita á borð við 13, SS Span, Sororicide, Silverdrome og Stjörnukisa. Með þeim verða Skátar sem eru einmitt að senda frá sér sína fyrstu plötu, Heimsfriður í Chile: Hverju má breyta, bæta við og laga. Skátar hefur verið að gera það gott með spilamennsku sinni í Reykjavík síðasta árið og fengu þeir m.a. mjög góða dóma í erlendu pressunni á Airwaves. Meðlimir Skáta hafa áður skipað hljómsveitir eins og Graveslime, Sofandi og Kusa þannig að menn þar á bæ vita vel hvað þeir eru að gera. Sveitirnar halda tvenna tónleika á morgun, fyrst kl. 15 og aftur kl. 20. Það er svo Galdrastund á sunnudaginn því þá mætir Dj Gísli Galdur á svæðið ásamt sérstökum gestum. Galdurinn þarf varla að kynna fyrir nokkrum manni en hann er t.d. núverandi meðlimur í sveitunum Ghostigital, Trabant og Quarashi til að nefna nokkrar. Galdurinn mun spila kl. 16 og svo aftur kl. 20 fyrir þá sem nenna ekki að drulla sér fram úr fyrr en eftir kvöldmat. Óþarfi er að taka fram að ókeypis er inn á allt draslið.
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira