Lífið

Misstu 56 kíló samanlagt

"Ég léttist um 35 kíló til að byrja með en fór svo að stunda líkamsræktina grimmt og þyngdist um nokkur kíló þannig að nú er ég 31 kílói léttari," segir Anna Heiða Pálsdóttir doktor í barnabókmenntum. Anna Heiða lenti í slæmu slysi árið 1998 og fór að hlaða á sig kílóunum í kjölfarið. "Sjúkraþjálfari hnykkti á mér hálsinn með þeim afleiðingum að ég fékk slæman hálshnykk. Taka varð brjósk úr mjaðmabeininu og setja í hálsinn og við það hætti ég allri líkamsrækt og dvaldi í táradal næstu tvö til þrjú árin," segir Anna Heiða og bætir við að á þessum tíma hafi hún verið í Englandi að skrifa doktorsritgerð sína. "Ég var fjarri fjölskyldunni og leitaði huggunar í óhollustunni. Ég sat við tölvuna í 12 tíma á dag, 7 daga vikunnar og var orðin eins og hokið gamalmenni." Lestu ítarlegt viðtal við Önnu Heiðu og Margréti Herdísi í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag en þær stöllur misstu 56 kíló samanlagt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.