Sport

Nike-auglýsing bönnuð í Kína

Stjórnvöld í Kína hafa bannað sýningar á Nike-auglýsingu þar sem sjá má Lebron James, leikmann Cleveland Cavaliers í NBA-körfuboltanum, í slagsmálum við teiknaðan kung-fu bardagalistamann. Að auki slæst James við tvær kínverskar konur í hefðbundnum kínverskum klæðnaði og tvo dreka, sem eru heilagt tákn kínverskrar menningu. Þessi atriði fóru fyrir brjóstið á Kínverjum sem fullyrtu að framleiðendurnir hefðu vanvirt kínverska menningu og var því brugðið á það ráð að leggja bann á auglýsinguna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×