Sport

Úrslit leikja í NBA-körfuboltanum

Níu leikir voru í NBA-körfuboltanum í gærkvöldi. San Antonio Spurs marði sigur á meisturunum í Detroit Pistons 80-77. Ben Wallace lék með Pistons að nýju eftir að hafa tekið út sex leikja keppnisbann sem hann fékk fyrir átökin í leiknum gegn Indiana fyrir hálfum mánuði. Tim Duncan skoraði 18 stig og tók 18 fráköst fyrir Spurs. Meistararnir í Pistons hafa unnið sjö leiki en tapað átta.Orlando Magic sigraði New York Knicks 104-98. Cuttino Mobley skoraði 34 stig fyrir Orlando og Steve Francis 26. Stephon Marbury var stigahæstur hjá Knicks, skoraði 28 stig. Los Angeles Lakers vann Golden State 97-88. Kobe Bryant skoraði aðeins 10 stig en Caron Butler var stigahæstur í Lakers-liðinu með 27 stig. Sacramento burstaði Indiana 113-87. Sex leikmenn hjá Sacramento skoruðu yfir 10 stig en Chris Webber var stigahæstur með 29. Minnesota vann góðan sigur á Phoenix á útivelli 97-93. Kevin Garnett skoraði 23 stig og tók 19 fráköst fyrir Minnesota. Amare Stoudamire var með 28 stig og Steve Nash með 22 voru stigahæstir hjá Phoenix sem hafði unnið níu leiki í röð. Boston vann Toronto 114-90, Washington sigraði Atlanta 114-90 þar sem Antoine Walker skoraði 28 stig fyrir Atlanta sem tapaði áttunda leik sínum í röð, Memhpis vann Philadelphia 94-86 í leik þar sem Paul Gasol skoraði 34 stig fyrir Memphis en Allen Iverson skoraði 25 stig fyrir Philadelphia. Loks sigraði Miami Chicago 105-81. Shaquille O´Neal skoraði 18 stig fyrir Miami.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×