Slegist um bók ráðherradóttur 4. desember 2004 00:01
Cecelia Ahern, 23 ára gamall rithöfundur og dóttir forsætisráðherra Írlands, segist engan áhuga hafa á því að feta í fótspor föður síns. Fyrsta skáldsaga hennar, Ps. Ég elska þig, sem út er kominn í íslenskri þýðingu, hefur enda fengið glymrandi viðtökur. Útgefendur og kvikmyndafyrirtæki, bæði austan hafs og vestan, hafa slegist um útgáfuréttinn. Cecelia hafði aðeins skrifað fyrstu tíu kafla bókarinnar þegar breskt útgáfufyrirtæki tryggði sér útgáfuréttinn. Það var fyrir tveimur árum og Cecelia aðeins tuttugu og eins árs. Móðir hennar fullyrðir að stúlkan hafi sest við skriftir sökum þess að hún nennti ekki í frekara nám, en þó hefur hún BA-próf í fjölmiðlun upp á vasann. Bókin hefur verið þýdd á yfir 30 tungumál og alls staðar fengið afar jákvæð viðbrögð. Sigurður A. Magnússon þýddi bókina á íslensku - sögu, sem Cecilia segir einfaldlega hafa komið til sín. Hún fjallar um gleði, sorg, ást og dauða og er tileinkuð David, kærasta hennar til þriggja ára. Í Bandaríkjunum var slegist um útgáfurétt á bókinni og fékk Cecelia greidda eina milljón dala í fyrirframgreiðslu. Þá hófust slagsmálin um kvikmyndaréttinn og fyrir hann fékk hún aðra milljón dala. Eins og áður sagði er Cecilia dóttir Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands. Þrátt fyrir að ljóst sé að hún hafi fengið góðar gáfur í vöggugjöf, eða kannski vegna þess, þá hyggur hún ekki á feril í stjórnmálum.
Innlent Menning Mest lesið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Glænýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann skákar Arnaldi Menning Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Lífið Fleiri fréttir Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sjá meira