Sport

Úrslit í Intersportdeildinni

Fimm leikir voru í Intersportdeildinni í körfuknattleik í kvöld. Njarðvík styrkti stöðu sína á toppnum er þeir sigruðu Tindastól á Króknum 95-85. Á sama tíma steinlág Snæfell fyrir Fjölni í Grafarvoginum 100-81. ÍR-ingar sigruðu KR 92-83, Hamar/Selfoss sigraði Hauka 93-88 og Keflavík sigraði Skallagrím örugglega í Keflavík, 94-67. Njarðvík hefur nú 16 stig á toppi deildarinnar en Snæfell, Fjölnir og Keflavík hafa öll 12. Á morgun fer fram síðasti leikur umferðarinnar er KFÍ tekur á móti Grindavík. KFÍ situr á botni deildarinnar og eru án stiga, en Grindavík er í sjötta sæti með átta stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×