Sport

Suns efst allra í NBA

 Phoenix Suns er efst allra liða í NBA-körfuboltanum eftir níunda sigur sinn í röð en liðið lagði Lebron James og félaga í Cleveland Cavaliers, 120-101, á heimavelli í nótt. Steve Nash, Quentin Richardson og Amare Stoudamire skoruðu allir 21 stig og fór Suns létt með að stöðva Lebron James sem skoraði aðeins 15 stig og var með afleita skotnýtingu, hitti aðeins úr 6 af 19 skotum sínum."Phoenix er langbesta liðið í deildinni í dag," sagði James. "Liðið spilar frábæra vörn og er með góð leikkerfi. Þetta var ekki minn dagur en það er það skemmtilega við NBA að það er leikur strax á morgun aftur." Þar með hefur Phoenix Suns unnið 13 leiki og aðeins tapað tveimur það sem af er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×