Eftirlitsmenn í fjölveiðiskipum 21. nóvember 2004 00:01
Til greina kemur að eftirlitsmenn verði settir um borð í fjölveiðiskip til að kanna hversu algengur lax er sem meðafli í Norðurhöfum. Vitað er að hann veiðist í síldartroll, en engar tölur liggja fyrir um hversu algengt það er, né heldur hvaðan laxinn kemur. Árna Ísakssyni veiðimálastjóra bárust nafnlausar upplýsingar um að íslenskt fjölveiðiskip sem var við síldveiðar við Svalbarða hefði tekið 200 laxa í trollið, en laxveiðar eru bannaðar nánast alls staðar í Norður-Atlantshafi. Laxarnir komu á land ásamt 800 tonna síldarafla sem var landað í Noregi. Þeir vógu allt upp í tvö kíló hver og voru greinilega laxar sem eru tvö ár í sjó en sá stofn hefur hnignað mun meira en stofn smærri laxa. Sérstaka athygli vakti að einn laxanna var merktur og hafði gengið frá Drammen í Suður-Noregi. Óvíst er hvort íslenski laxinn gengur svo langt en engar rannsóknir liggja fyrir um slíkt, né heldur hversu algengur laxinn er sem meðafli. Árni segir samt að telja megi víst, fyrst þetta merki fékkst þarna og um svona marga laxa hafa verið að ræða, að þetta gerist oftar. Hann nefnir að laxar hafa fengist í hringnót við síldveiðar á síldarárunum á 7. áratugnum. Árni segir til umræðu að samræma rannsóknir í Norður-Atlantshafi, m.a. með því að hafa eftirlitsmenn um borð í fjölveiðiskipum til að kanna hversu algengur lax er sem meðafli. Veiðimálastjóri fékk einungis upplýsingar um aflatölur skipsins, sem var við veiðar árið 2002, svo ekki er vitað hversu stórt troll var notað. Vitað er að fleiri skip voru við veiðar á sama tíma en engar upplýsingar bárust af því að þau hefðu veitt laxa. Slíkar upplýsingar berast yfir höfuð ekki, þótt eftir þeim sé leitað, því málið er væntanlega viðkvæmt að sögn Árna.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Erlent Fleiri fréttir Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Sjá meira