Friður með vísindalegri þekkingu 21. nóvember 2004 00:01
Í dag er formlegur stofndagur samtaka sem kalla sig Alvöru sameinuðu þjóðirnar til friðar (e. Real United Nations for World Peace). Það eru önnur samtök; Global Country of World Peace (GCWP) sem standa að stofnun hinna nýju sameinuðu þjóða en GCWP hafa skilgreint sig sem hnattríki sem fer með foreldrahlutverk allra ríkisstjórna heims. "Ríkisborgarar þess, af ýmsu þjóðerni, iðka allir huglæga visindalega prófaða tækni sem kyrrir vitundina og skapar varanlegan frið," eins og segir í fréttatilkynningu. Guðrún Kristín Magnúsdóttir, kennd við Freyjuketti og Óðsmál, hefur forgöngu um verkefnið á Íslandi og er mjög áfram um að það nái fótfestu í heiminum. GCWP stendur meðal annars að byggingu sérstakra friðarhalla í þrjú þúsund borgum heimsins og vinnur Guðrún Kristín að því að fá lóð undir slíka friðarhöll í Reykjavík. Hún segir nýju samtökin stofnuð samtímis í 108 löndum í dag og hefur fulla trú á að starfsemin muni færa okkur frið á jörð. Stofnandi GCWP er indverski eðlisfræðingurinn Maharishi, sem á sínum tíma fann upp tækni sem nefnist TM - Siddhi og hefur nefnst innhverf íhugun á íslensku. Með þeirri aðferð, sem Guðrún Kristín segir þekkta og hávísindalega, sé hægt að koma á raunverulegum friði. Hundruð tilrauna og rannsókna ku liggja fyrir því til staðfestingar. Dagurinn í dag, 22. nóvember, var valinn til stofnunar Alvöru sameinuðu þjóðanna til friðar því í dag er réttur dagur til að vekja og uppljóma vitund samkvæmt vedíska dagatalinu. "Lögmál náttúrunnar er best vakandi til stuðnings framþróunar," samkvæmt fréttatilkynningu. Maharishi.
Fréttir Innlent Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Sjá meira