Sjö manns sagt upp á Vogi 21. nóvember 2004 00:01
Sjö starfsmönnum sjúkrahússins Vogs, sem er þungamiðja starfsemi SÁÁ, verður sagt upp og dregið saman í þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Ráðgjafavakt og sú bráðaþjónusta sem veitt hefur verið við göngudeild meðferðarstofnunarinnar verður lögð af. Innlögnum verður fækkað úr 2350 í 2100, eða um 10%, en við það mun svigrúm til bráða- og flýtiinnlagna minnka verulega. Dregið verður úr viðhaldsmeðferð fyrir ópíumfíkla frá því sem nú er og nýir sjúklingar munu ekki fá þessa meðferð, þótt hún þyki hafa borið mjög góðan árangur. Sjúklingar sem eru yngri en 16 ára verða ekki innritaðir á Vog og þjónusta við vímuefnafíkla sem jafnframt eru með geðsjúkdóma mun minnka. Þórarinn Tyrfingsson, framkvæmdastjóri meðferðasviðs hjá SÁÁ, segir samtökin tilneydd að rifa seglin. Sjúklingum hafi fjölgað og þeir fái meiri en þjónustu en áður sem feli í sér aukinn kostnað. „Við höfum gert grein fyrir þessum kostnaðarauka alls staðar þar sem það er hægt en ekki fengið skilning fjárveitingavaldsins,“ segir Þórarinn. Með aðgerðunum næst 45 milljón króna sparnaður á 380 milljón króna árlegum rekstrarkostnaði á Vogi. Áfram verður staðið við þjónustusamning sem í gildi er milli heilbrigðisráðuneytisins og SÁÁ. Hins vegar verður áfram 70 milljón króna halli á sjúkrarekstri SÁÁ á ársgrunni sem samtökin munu borga.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Fleiri fréttir Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Sjá meira