Kjarabætur leiða til verðbólgu 20. nóvember 2004 00:01
Skattalækkanir ríkisstjórnarinnar leiða til meiri ójafnaðar því skattarnir lækka mest hjá þeim sem hæstar tekjurnar hafa. Þetta segja þeir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Ríkisstjórnin kynnti á föstudag frumvarp sem felur í sér áður boðaða fjögurra prósenta lækkun tekjuskatts einstaklinga auk afnáms eignarskatts á einstaklinga og fyrirtæki og tæplega helmings hækkun barnabóta. Ríkisstjórnin telur að þetta leiði til fjögurra og hálfs prósents hækkunar ráðstöfunartekna barnafólks og allt að tíu prósenta hækkunar einstæðra foreldra. Össur Skarphéðinsson segir ánægjulegt að hækka eigi barnabætur. Hækkunin sé hins vegar ekki nema lítill hluti af þeim 11,5 milljörðum króna sem Framsóknarflokkurinn hafi haft af barnafjölskyldum með því að lækka barnabætur frá því að flokkurinn kom í félagsmálaráðuneytið. Ríkisstjórnin er að kaupa sér stundarfylgi með tillögunum, að mati Össurar. "Þessi skattalækkun er aðeins loforð á pappír og það er athyglisvert að stærstur hluti þeirra tekur ekki gildi fyrr en kosningaárið 2007. Auk þess tel ég að skattalækkanir í núverandi þensluástandi geti ekki annað en aukið enn á verðbólgu. Þegar upp verður staðið er því líklegt að ávinningurinn sem menn kunna að hafa af þessum tillögum verði greiddur af almenningi sjálfum." Steingrímur J. Sigfússon segir að barnlaust lágtekjufólk fái lítið sem ekkert út úr tillögum ríkisstjórnarinnar. Munurinn á því og hátekjufólki verði svo enn meiri um áramótin þegar hátekjuskatturinn lækkar. Auk þess telur Steingrímur að kjarabótin reynist lítil þegar á heildina er litið. Ríkissjóður verði af miklum tekjum, 22 milljörðum króna, og því kunni að verða mætt með niðurskurði í velferðarkerfinu eða aukinni gjaldtöku, til dæmis í heilbrigðiskerfinu. Þá hverfi kjarabótin fljótt.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira