Gagnast eignamiklu hátekjufólki 20. nóvember 2004 00:01
Fyrirhugaðar skattabreytingar ríkisstjórnarinnar gagnast helst eignamiklu hátekjufólki að mati hagfræðings Félags eldri borgara. Hann segir að nær hefði verið að hækka skattleysismörk til að koma á móts við þá tekjulægstu. Framkvæmdastjóri ASÍ segir þær ekki vera aðgerð til tekjujöfnunar, heldur þvert á móti. Samkvæmt frumvarpi sem ríkisstjórnin samþykkti í gær mun eignaskattur verða afnuminn, barnabætur hækka um tæpan helming og tekjuskattur lækka í áföngum, um fjögur prósent, fram til ársins 2007. Stjórnvöld fullyrða að af þessu leiði umtalsverður kaupmáttarauki fyrir heimilin í landinu. Frumvarpið er nú til skoðunar hjá Alþýðusambandi Íslands en framkvæmdastjóri sambandsins, Gylfi Arnbjörnsson, segir ljóst að það verði ekki til tekjujöfnunar heldur þvert á móti. Undir það tekur hagfræðingur Félags eldri borgara, Einar Árnason, og segir að nær hefði verið að hækka skattleysismörk til að koma til móts við þá tekjuminnstu. Með því fá líka allir sömu lækkun skatta. Einar tekur dæmi af manni sem hefur 100 þúsund krónur í mánaðartekjur og gerir ráð fyrir því að þær hafi fylgt neysluverði frá árinu 1988 og geri það áfram. Hlutfall tekna sem greitt er í skatt var 0,2 prósent árið 1988 en verður 7,9 prósent árið 2007, miðað við fyrirhugaðar breytingar. Viðmið skattleysismarka valda því. Spurður hvort afnám eignarskatts komi ekki flestum til góða segir Einar það vissulega koma þeim til góða sem eigi skuldlausar eignir eða svo til. „Samkvæmt tillögunum virðist eignaskatturinn þó koma til með að hækka verulega næsta árið áður en þeir falla niður vegna þess að fasteignamatið hækkar um 14 prósent um næstu áramót, er mér sagt. Þarna er miðað við að eignamörkin hækki um þrjú prósent og það þýðir að þú ert að borga af stærri hluta eignar þinnar en áður,“ segir Einar.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira