Ónýt eftir nauðhemlun 18. nóvember 2004 00:01
Gríðarlegur hvellur varð til þess að flugmenn á breiðþotu Atlanta-flugfélagsins hættu við flugtak í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, á dögunum. Mikinn reyk lagði frá vélinni þegar flugmennirnir nauðhemluðu og beygðu svo út af flugbrautinni. Boeing 747 breiðþotan var fullhlaðin af fragt og eldsneyti, þegar hún hóf flugtak og vóg því um 360 tonn. Vélin var rétt komin á flugtakshraða þegar flugmennirnir heyrðu háan hvell. Mótorar vélarinnar voru á fullri orku og veghljóð frá flugbrautinni, og því mikill hávaði í stjórnklefanum. Þannig að þegar flugmennirnir tala um að þeir hafi heyrt mikinn hvell, er ljóst að hann hefur ekki verið neitt smáræði. Þeir ákváðu samstundis að hætta við flugtak og nauðhemluðu bæði með mótorunum og fótbremsum. Þegar ljóst var að ekki yrði hægt að stöðva vélina áður en hún færi fram af brautarendanum reyndu þeir að snúa henni þversum, á brautinni. Við það fór hún út af flugbrautinni og stakkst á nefið í sandinn. Áhöfnin forðaði sér út um neyðarútganga, en ekki kom upp neinn eldur í vélinni. Hún er hinsvegar talin ónýt eftir atvikið. Þegar vélin var skoðuð eftir þetta kom í ljós að margir hjólbarðar voru sprungnir. Hinsvegar er ekki vitað hvort sprenging þeirra hafi valdið hvellinum, eða hvort þeir sprungu þegar flugmennirnir nauðhemluðu. Þormóður Þormóðsson, fulltrúi Rannsóknarnefndar flugslysa við rannsóknina á þessu óhappi, sagði í samtali við fréttastofuna, að hluti af hjólabúnaði vélarinnar verði sendur til rannsóknar, líklega í Bandaríkjunum. Lesið verður af flugritum vélarinnar, í Bretlandi, í næstu viku.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira