Besta orkuverð hér á landi 15. nóvember 2004 00:01
Orkuveita Reykjavíkur samdi við Norðurál um besta orkuverð til stóriðju sem fengist hefur hér á landi, staðhæfir Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitunnar. Hann segir samninginn afar þýðingarmikinn fyrir atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að ekki sé verið að undirbjóða Landsvirkjun með verði sem leiði ekki af sér arð. Þau verð sem fengist hafi séu bestu verð sem fengist hafi hér á landi. Alfreð segir þær framkvæmdir sem af samningunum leiða hafa gríðarlega þýðingu fyrir atvinnulíf og nefnir sem dæmi að um eittþúsund manns starfi nú um stundir bæði við virkjanaframkvæmdir og stækkun Norðuráls. Þegar upp verði staðið skapist um fimmhundruð framtíðarstörf hjá Norðuráli, sem megi margfalda með 1,5 - 2 til að fá út afleidd störf. Hann segir að um sé að ræða 1200-1500 hálaunastörf, sem skapi mikla möguleika fyrir allt svæðið. Hann segir Hellisheiði bjóða upp á mikla framtíðarmöguleika og þar rísi hugsanlega tvær til þrjár nýjar jarðgufuvirkjanir á næstu tíu til fimmtán árum. Alfreð segir útlit fyrir að hægt sé að virkja fyrir 600 megavött fyrir rafmagn, sem sé næstum því eins og heil Kárahnjúkavirkjun.
Fréttir Innlent Mest lesið Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Erlent Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Innlent „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Miklum meirihluta finnst auglýsingar SFS slæmar Innlent Annar snarpur skjálfti í Ljósufjallakerfi Innlent Einhliða vopnahlé Rússa hafið Erlent „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ Innlent Svik við almenning, kerfið og samstarfsfólk Innlent Fleiri fréttir Ólafur Þór undrandi og dómsmálaráðherra talar um svik við þjóðina Heilsa, vellíðan, friður, réttlæti og jöfnuður mikilvægustu markmiðin Svik við almenning, kerfið og samstarfsfólk Ein breyting á stjórn sem leggja á niður „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Miklum meirihluta finnst auglýsingar SFS slæmar Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Annar snarpur skjálfti í Ljósufjallakerfi Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ „Þetta er svona eitraður kokteill” Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Hefur áhyggjur af því að Amgen „gleypi Íslenska erfðagreiningu og spýti því út“ Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Páfaspenna, drykkjulæti og umdeildur útburður „Hann var með háðslegt glott, þetta var svo lítið mál“ Skora á stjórnvöld að skoða áhrifin af hærra veiðigjaldi á Vestfirði Konan í gæsluvarðhaldi í mánuð til viðbótar Sagðir hafa stolið viðkvæmum rannsóknargögnum frá lögreglu og saksóknara Bein útsending: Staða ungs fatlaðs fólks á húsnæðis- og leigumarkaði Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Ekkert sem bendi til málþófs um veiðigjöld Þeir sem gangi inn sem páfaefni gangi út sem kardinálar Skorað á Ísraela og átök hafin milli Indlands og Pakistans Ekki hægt að renna sér í Lágafellslaug næstu vikuna Rekstur Reykjanesbæjar fram úr vonum vegna hærri útsvarstekna Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Stútur á 106 þar sem hámarkshraði var sextíu Sjá meira