Ritstýrt yfir landfjórðung 15. nóvember 2004 00:01 "
Ég kom til Ísafjarðar í afslöppunarferð um páskana og var þá leidd fram fyrir karlmann og mér tilkynnt að hann væri mannsefni mitt," segir Guðný Jóhannesdóttir, alsæl með lífið og tilveruna fyrir vestan og bætir við að þar sem þau séu bæði hlýðin með eindæmum hafi hún flust búferlum í haust. Bóndinn heitir Karl Jónsson og er frá Sauðárkróki og annast innkaup á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Guðný var blaðamaður hjá Fróða og skrifaði um efni sem snerti landsbyggðarfólk í tímarit fyrirtækisins. Þegar kreppti að missti hún starfið og stóð uppi atvinnulaus. Hún lagðist ekki í eymd og volæði heldur bjó sér hreinlega til vinnu; fékk prentsmiðjuna Ásprent/Stíl á Akureyri í lið með sér og hóf að skrifa og gefa út tímaritið Við sem fjallar um mannlíf á Akureyri og nágrenni. "Blaðið gengur mjög vel enda spilum við þetta eftir eyranu og pössum að fara ekki fram úr okkur," segir Guðný og þvertekur fyrir að það sé eitthvert vandamál að búa á Vestfjörðum en skrifa um menn og málefni í Eyjafirði. "Tölvur og net bjarga því og svo nýt ég aðstoðar nemenda við fjölmiðladeildina í Háskólanum á Akureyri." Ritstjórnin er ekki eina starf Guðnýjar því hún vinnur að gæðamálum hjá byggingafyrirtækinu Ágústi og Flosa á Ísafirði og hefur því í mörg horn að líta. Að auki er heimilið stórt, þar búa tvö börn Guðnýjar og annað tveggja barna Karls. "Þau eru þriggja, fimm og sjö ára og það er mikið fjör hjá okkur." Guðný unir hag sínum vel vestra og segir sig í stórum hópi fólks sem hafi uppgötvað dásemdir Vestfjarða. Eyrarfjall blasir við henni á degi hverjum í stað Vaðlaheiðar áður en eitt sinn var Esjan hennar bæjarfjall. "Ég bjó í Reykjavík í tvö ár en ég kunni ekki alveg við umferðarhraðann," segir hún. "Færri bílar eru á Ísafirði en í Reykjavík og þeir aka líka hægar."
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Fleiri fréttir Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Sjá meira