Yfirmannaskipti á mánudag 15. nóvember 2004 00:01
Yfirmannaskipti verða á flugvellinum í Kabúl á miðvikudag. Hallgrímur Sigurðsson hverfur þá frá störfum og kemur til Íslands. Hann lauk teppakaupum sínum á flugvellinum á meðan undirmenn hans lágu í sárum á sjúkrahúsi. Unnustur og eiginkonur friðargæsluliðanna sem lentu í lífsháska á kjúklingastræti í kabúl í afganistan sendu frá sér yfirlýsingu í gær. Það var mat þeirra og manna þeirra að umræðan um þá og þá sér í lagi boli sem þeir íklæddust við heimkomuna væri á villigötum. „Shit happens" væru ummæli sem Hallgrímur Sigurðsson viðhafði þegar hann lauk máli sínu eftir að hafa útskýrt leiðangurinn til teppakaupmannsins. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafði friðargæsluliðunum ekki verið bannað að tjá sig en þeir kusu að upplýsa ekki um tilgang þess að íklæðast bolunum við heimkomuna. Fréttastofa Stöðvar tvö spurði engu að síður mjög ákveðið í Leifstöð hvort ekki fælist í bolunum ádeila á yfirmenn þeirra. Garðar Forberg tekur við stjórnun flugvallarins í Kabúl á miðvikudag en hann stjórnaði áður flugvellinum í Pristina þegar íslendingar sáu um rekstur flugvallarins þar. Ekki er áformað að Hallgrímur Sigurðsson taki að sér fleiri störf innan utanríkisþjónustunnar á næstunni. Þær upplýsingar fengust í utanríkisráðuneytinu að allar skýrslur og greinargerðir um atvikið í Kabúl hefðu verið skrifaðar. Rannsókn málsins væri að fullu lokið. Það hefur þó ekki komið fram áður að á meðan Stefán, Steinar Örn og Sverrir Haukur lágu á sjúkrahúsi eftir árásina fékk Hallgrímur teppakaupmanninn úr kjúklingastræti til þess að koma með sýnishorn af teppum á flugvöllinn og kláraði þar með kaup sín. Þetta er staðreynd sem sýnir svo ekki verður um villst að ferðin í kjúklingastræti með hörmulegum afleiðingum sínum var óþörf.
Fréttir Innlent Mest lesið Sérveitin í aðgerð á Selfossi Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Fleiri fréttir Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin í aðgerð á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Sjá meira