Segir fjármálastjórn slaka 14. nóvember 2004 00:01
Hækkun útsvars í Reykjavík þýðir að borgin tekur þriðjung af áformaðri lækkun tekjuskatts um áramótin. Oddviti sjálfstæðismanna segir þetta beina afleiðingu af slakri fjármálastjórn og langvarandi skuldasöfnun R-listans. Útsvar og fasteignaskattar hækka í Reykjavík um næstu áramót, samkvæmt ákvörðun meirihluta R-listans í gær en tillaga þess efnis verður formlega lögð fyrir borgarstjórn á þriðjudag. Þetta veldur því að ávinningur íbúa Reykjavíkur verður minni af áformaðri tekjuskattslækkun ríkisins, en ríkisstjórnin hefur tilkynnt að tekjuskattur lækki um eitt prósent um áramótin, fari úr 25,75% í 24,75%. Útsvarið myndar einnig staðgreiðsluprósentuna en í Reykjavík mun það hækka um 0,33%, fara úr 12,7% í 13,03%. Þetta þýðir að skatthlutfall Reykvíkinga lækkar ekki um eitt prósent heldur um 0,67%, fer úr 38,45% í 37,78%. Samnhliða útsvarshækkun verða fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði hækkaðir. Álagningarhlutfallið hækkar úr 0,32% upp í 0,345% af fasteignamati. Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, segir að ástæða aðgerðanna sé sú að eiga svigrúm til að greiða niður skuldir og til að mæta tilvonandi launahækkunum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna segir þetta beina afleiðingu af langvarandi skuldasöfnun og slakri fjármálastjórn R-Listans. Árni segir hins vegar að fjárhagur sveitastjórna sé víða bágur og það viti Villhjálmur mætavel. Villhjálmur svarar því til að Reykjavíkurborg sé mun öflugri eining en margar aðrar sveitastjórnir og borgin sé búin að stýra sínum fjárhag með þeim hætti að í fyrsta sinn verði að nýta útsvarið í botn. Það sé þó að minnsta kosti gott að nú sé vandinn í fyrsta sinn viðurkenndur.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira