Innlent

Maðurinn og ímyndin í Listasafninu

Veruleikinn um manninn og ímyndina verður til sýnis í Listasafni Íslands frá og með morgundeginum. Þar sést sú nýsköpun sem átt hefur sér stað í íslenskri myndlist undanfarinn áratug. Höfundur hvers verks leiðir hvern gest í allan sannleika um verk sitt í gegnum gsm-síma. Sýningin er öll sú fjölbreyttasta og listamennirnir af yngri kynslóð íslenskra listamanna. Eins og yfirskrift sýningarinnar ber með sér er umfjöllunarefnið víðtækt, nefnilega veruleikinn, maðurinn og ímyndin. Ef að gestir eiga í einhverjum vandræðum með að átta sig á því hvert listamennirnir eru að fara, er hægt í hringja í gsm-númer í tengslum við hvert verk og fá útskýringar á því hvort heldur er á íslensku eða ensku. Einnig geta listunnendur tjáð sig um verkin með því að senda sms-skilaboð um hvert verk fyrir sig. Einn listamannanna er Egill Snæbjörnsson sem sýnir verk sem á íslensku gæti kallast þú tekur allan minn tíma. Þar er myndband í bakgrunni, þar sem þrír svertingjar syngja bakraddir og einhvers konar planta með andlit tekur þátt. Egill segir þetta vera myndir úr barnæsku sinni, sem púslað hafi verið saman. Svertingjar í bakraddasöngvum og flugvél sem hendir kjarnorkusprengju. Egill leikur öll hlutverkin í verkinu og við opnun sýningarinnar syngur hann með verkinu. Hann segir þetta einfaldlega vegna þess að það hafi verið fljótlegast. Með þessu móti hafi hann eki þurft að kenna öðrum lagið eða annað. Verkið verður líklega ekki flutt aftur í heild sinni, nema eitthvað sérstakt komi til. Egill hefur sýnt hluta verksins í Þýskalandi og Skotlandi, sem og í Kópavogi. Hann segir að stundum virðist sem fólk haldi að hann sé að gera grín að svertingjum, sem sé alls ekki rétt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×