140 heimilisofbeldismál á ári 12. nóvember 2004 00:01
Um 140 skýrt skilgrein heimilisofbeldismál eru greind á slysa- og bráðasviði Landspítala háskólasjúkrahúss á hverju ári, að sögn Margrétar Tómasdóttur sviðsstjóra þar. Nú stendur yfir tilraun með bráðamótöku fyrir þolendur heimilisofbeldis á spítalanum. Dómsmálaráðuneytið skuldbatt sig síðastliðið vor til að setja tvær milljónir króna í tilraunina sem standa á í tvö ár. Á móttökunni eiga fórnarlömb heimilisofbeldis að fá sérstaka aðhlynningu, auk þess sem þeim verði boðin sérhæfð lögfræðiaðstoð. "Við höfum bent á að laga þurfi lagaumhverfið sem þessi brot varða til þess að konur sæki í þessa þjónustu," sagði Margrét, spurð um reynsluna af þessari tilraun. "Þessi móttaka er ekki orðin formlega til ennþá, en við höfum verið að þjálfa fólkið okkar í því að finna þessa einstaklinga og fá þá til þess að segja frá. Þeir koma oft undir öðrum formerkjum inn til okkar. Þessi mál verður að vinna hægt og örugglega." Margrét sagði, að ekki hefði fengist fjármagn til að reka móttöku umfram þá sem væri á slysa- og bráðasviði LSH nú. Milljónirnar tvær væru hins vegar eyrnamerktar ókeypis lögfræðiþjónustu og hefði verið varið til hennar. Þetta mál á sér áralangan aðdraganda. Það var árið 1997 sem Sólveig Pétursdóttir skipaði nefnd sem í sátu fulltrúar ráðuneyta dóms,- félagsmála,- heilbrigðis,- og menntamála til að vinna að forvörnum, hjálparúrræðum, meðferðarúrræðum og breytingum á löggjöf til að sporna gegn heimilisofbeldi. Nefndin samþykkti síðan tilögu um að komið yrði á fót sérhæfðri móttöku fyrir þolendur heimilsiofbeldis, þar sem þeir sem fyrir ofbeldi yrðu gætu leitað nauðsynlegrar aðstoðar og stuðnings, sér að kostnaðarlausu. Móttakan skyldi starfa náið með lögreglu sem skyld gegna lykilhlutverki við að kynna brotaþolum starfsemi hennar og fylgja þeim þangað.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Fleiri fréttir Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Sjá meira