Dæmdir til bóta vegna nauðgunar 12. nóvember 2004 00:01
Þrír menn voru dæmdir til að greiða konu skaðabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Konan höfðaði skaðabótamál á hendur mönnunum, og íslenska ríkinu vegna hópnauðgunar. Ríkissaksóknari hafði tvívegis neitað að taka málið upp þar sem framburður mannanna þriggja þótti vega þyngra en frásögn konunnar og framkomin gögn dygðu ekki til sakfellingar. Konan krafðist einnig skaðabóta frá Íslenska ríkinu þar sem lögreglurannsókn hefði verið verulega ábótavant. Hulda Rúriksdóttir lögmaður konunnar segir að dómurinn hafi ekki tekið afstöðu til rannsóknarinnar og ekki talið að hagsmunir konunnar fælust í því hvort ákært væri í málinu eða ekki. Íslenska ríkið var því sýknað af kröfunni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Mennirnir þrír voru hinsvegar taldir hafa framið ólögmæta meingerð gegn konunnni og æru hennar og eiga að greiða henni ellefu hundruð þúsund krónur í skaðabætur. Tildrög málsins eru þau að konan hafði verið á krá í miðbænum ásamt vinkonu sinni. Hún fór í samkvæmi ásamt þremur mönnum í hús í Breiðholti þar sem henni var nauðgað af öllum þremur mönnunum. Konan taldi að ef hún myndi veita mótspyrnu gæti það leitt til frekari líkamsmeiðinga og því voru ekki áverkar á henni sem staðfestu framburð hennar. Konan tilkynnti lögreglu um atburðinn um nóttina og var henni ekið á neyðarmótttöku. Húsráðandi var hinsvegar ekki yfirheyrður fyrr en daginn eftir og hinir mennirnir ekki fyrr en tveimur dögum seinna.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Sjá meira