Stríðsöxinni sökkt 11. nóvember 2004 00:01
Fyrrverandi skipverjar varðskipsins Týs og bresku freigátunnar Falmouth, sem börðust hatrammlega í íslenskri lögsögu fyrir nær 30 árum, drukku kaffi um borð í Tý í dag. Gamlir tímar voru rifjaðir upp í varðskipinu, í sátt og samlyndi. Tilefnið var útgáfa elleftu bókarinnar í flokknum Útkall eftir Óttar Sveinsson. Þar fjallar hann um langalvarlegasta atburð þorskastríðanna sem átti sér stað árið 1976. Mikil heift var komin í stríðið, Týr ætlaði að klippa á vörpu bresks togara, sem var að ólöglegum veiðum, þegar bresku freigátunni Falmouth var siglt á fullri ferð og afli inn í varðskipið. Með tölvutækni hefur atburðurinn verið endurskapaður á bókarkápu. Óttar segir þetta hafa gerst tvisvar sama kvöldið. Eftir að herskipið sigldi á Tý í fyrra skiptið hafi varðskipið náð að rétta sig af og í kjölfarið hafi Guðmundur Kjærnested skipherra klippt á togarann sem þeir voru að elta. Skömmu seinna hafi Bretarnir aftur komið inn í hliðina á Tý og voru rétt búnir að sökkva honum. Íslendingur var um borð í freigátunni, Óli Tynes, sem þá var blaðamaður á Vísi. Hann horfði á þegar varðskipið fór nær alveg á hliðina eftir það sem kallað hefur verið morðárás freigátunnar. Óli, sem er gamall sjómaður, segir þetta í fyrsta sinn sem hann hafi orðið hræddur á sjó. Hann hafi óttast mjög að Týr sykki með manni og mús. Undir þau orð tekur fyrrverandi aðgerðarstjóri freigátunnar, Mark Masterman. Hann segir dásamlegt að Íslendingarnir hafi sloppið lifandi frá þessu og að Óttar hafi skrifað bókina. Guðmundur Kjærnested, skipherra Tý, segir atburðinn vissulega eftirminnilegan og segist jú hafa gluggað í bókina. Mest gaman hafi hann haft af því að lesa hugrenningar áhafnarinnar því þær hafi hann ekki vitað um áður. Spurður hvort ekki sé sérstök upplifun að hitta skipsverjanna af freigátunni segir hann svo ekki vera. Honum finnst meira um vert að hitta sína gömlu skipsfélaga.
Fréttir Innlent Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Fleiri fréttir Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Sjá meira